Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 38
Smyglskipið Casco. svo furðulega margbreytileg, að með ólíkindum má telja. Ýmist var það í hávegum haft fyrir frægðarfarir, eða illræmt fyrir ósæmandi aðfarir, en sagan er sannleikanum samkvæm. Ferill skipsins hófst, er það sigldi um Gullnahliðið við San Francisco, sem kappsiglari og skemmtiferðaskip. Um borð var meðal annarra hinn frægi rithöf- undur Robert Louis Stevenson, sem reit ævintýra og leyndar- dómsfullar sögur, sem vinsælar urðu um heim allan. Næstu 7 árin gegndi skipið því hlutverki, sem því var upphaflega ætlað, en vakti enga sérstaka athygli manna, nema fyrir fínheit og glæsileik, en þá skipti það um hlutverk og eig- anda og var gert út á selveiðar í norðurhöfum, sem þá voru stund- aðar af miklu offorsi. Casco varð eitt þeirra skipa, sem fljótast var í veiðiferðum og talið hraðskreiðast úthafsselveiðara af svipaðri stærð, á árunum 1892-1897. Skipverjar voru taldir hinir miskunnarlausustu harðjaxlar, sem nokkru sinni höfðu troðið skipsfjalir á slóðum Norð- ur-Kyrrahafs. Selskinn voru í háu verði, á þessum tímum og sam- keppnin gífurleg. Þessi spöku dýr voru drepin með spjótum, skot- vopnum eða öðrum tiltækum vopnum, miskunnarlaus slátrum, jafnvel kvendýrum, sem komin voru að því að fæða, var ekki hlíft, því að það voru peningar í aðra hönd, — miklir peningar. Ekkert tillit var tekið til þeirrar hættu, að dýrunum yrði útrýmt, líkt og buffalóunum nokkrum árum áð- ur. Ásóknin var svo mikil að árið 1893 voru ekki færri en 120 skip, hvert með frá 5 til 30 manna áhöfn, sem stunduðu þessar veið- ar. Og Casco sló öll hraða- og um leið aflamet. Fyrst á miðin og fyrst í höfn, með fullar lestir af sel- skinnum. Blóðidrifin þilför og ó- geðslega lyktandi lestar. Veður og vindar skiptu ekki máli, fyrir það skip og um stjórnvölinn héldu traustar hendur. Þannig gekk þetta, allt til ársins 1897, en þá hafði selnum næstum verið gjöreytt og veiðimenn sáu árangurinn af hinu hömlulausa drápi. Þá var loks tekið í taumana. Stjórnir Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands komust að sam- komulagi um að vernda sela- stofninn í nokkur ár, til þess að hann gæti náð sér, einnig að veið- arnar skyldu fara fram á mann- úðlegri hátt í framtíðinni. Þegar selveiðunum lauk var Casco ásamt 12 öðrum systur- skipum, siglt til Victoríu B.C. og þau látin grotna niður, — öllum nema þremur og þar á meðal Casco, sem 22 árum seinna eyði- lagðist við King Island, eftir enn frekari niðurlægingu. Þótt þessi frásögn sé eingöngu um Casco, er vert að minnast að- eins á hin tvö systurskip, sem aftur komust í gagnið, en öll þessi þrjú skip áttu eftir að vekja athygli í sögu sjóferða, þótt á misjafnan hátt yrði. Annað þeirra var í eigu Alex McLean skipstjóra og hlaut nafn- ið „Draugaskipið" í hinni frægu sögu Jack Londons „Sjóúlfurinn“, VlKINGUR 326

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.