Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Side 7
skyldu því forðast antik í þessum
löndum, sér í lagi ef hún skyldi nú
vera ekta.
Tollskrár heimsins eru hið
mesta torf. Sá sem kaupir sér
Buddha í Thailandi, ætti helst að
vita að ströng viðurlög eru við því
að geyma guð almáttugan í ferða-
tösku, eða kofforti.
Það varðar við lög og líka að
flytja guð þjóðarinnar úr landi.
Það eru landráð.
En það er fleira en Buddha, sem
verður að vera á réttum stöðum.
Kanadískir tollverðir eru ekkert
sérlega uppnæmir fyrir áfengi hjá
ferðamönnum, en það verður að-
eins að vera geymt á réttum stöð-
um. T.d. í bílum. Það verður að
vera annarsstaðar en í farþega-
rýminu.
Lög um áfengi og bifreiðar
banna nefnilega áfengi í seilingu
frá bílstjóranum.
Tollverðir
Austantjalds
Tollverðir Austantjaldsland-
anna eru í litlu frábrugðnir starfs-
bræðrum sínum í öðrum löndum
Evrópu.
Nema þeir eru dálítið meira
upp á bókina.
Dagblöð, bækur og tímarit, er
bannvara á landamærunum. Því
innflutningur á prentuðu máli er
óheimill ferðamönnum.
Þá er það að segja að landa-
mæraeftirlitið gengur mjög hart
eftir að menn líkist myndinni, sem
er í passanum þeirra.
Hippar eru oft mjög spældir í
landamærum kommúnistaríkj-
anna. Telja kommana vera á móti
síðu hári og hippum, en oftast eru
þeir þá ekki eins hárprúðir í pass-
anum og þeir eru í raun og veru og
þegar landamæraverðirnir benda
hippunum á rakarastofu, þá er
það ekki vegna þess að bannað sé
að vera í landinu með sítt hár,
heldur er þá líklegt að hippinn
líkist sjálfum sér í passanum. þeg-
ar hann hefur rakað sig og klippt.
Og hann verður að velja -
hárið eða landið.
JG.
NýrfVÍnyl
SJÓMENN
Þetta merki bregst ykkur aldrei
Veljið það.- Nótið VINYL-vettl-
inga í ykkar erfiða starfi.
Starf ykkar krefst sterkustu og
endingarbeztu vettlinganna.
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF.
Skúlagötu 51 - Reykjavlk
Slmar: 12063 og 14085.
VÍKINGUR
295