Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Side 18
— Álit nefndarinnar: Telja verður
að öryggisloki hefði komið í veg
fyrir slysið.
Maður slasast á
netabát
Nr. 9. — Sunnudaginn 28. mars
1976. — Álit nefndarinnar:
Óhappaslys.
Háseti slasast á
netabát
Nr. 10. — Miðvikudaginn 31.
mars 1976. — Álit nefndarinnar:
Óhappaslys. Brýna ber fyrir
mönnum að skorða alla hluti,
þannig að ekki stafi hætta af þeim í
veltingi.
Slys um borð í
netabát
Nr. 11. — Mánudaginn 5. apríl
1976. — Álit nefndarinnar: Vara
ber mjög við því, að menn standi
nær veiðarfærum, sem verið er að
leggja, en fyllsta nauðsyn krefur.
Tveir menn farast
er báti hvolfir
Nr. 12. — Mánudaginn 12. apríl
1976. — Álit nefndarinnar: Or-
sakir slyssins óljósar. Telja verður
athugavert að lestarlúgur voru
óskálkaðar og ekki hirt um að loka
lest eftir að lúguhleri fór af. Enn-
fremur að lúkarskappi var opinn.
Maður slasast á netabát
Nr. 13. — Mánudaginn 12. apríl
1976. — Álit nefndarinnar: Telja
verður, að öryggisloki hefði komið
í veg fyrir slysið.
Maður ferst þegar
rækjubátur sekkur
Nr. 14. — Þriðjudaginn 4. maí
1976. — Álit nefndarinnar:
Togbúnaður varhugaverður þar
sem togblakkir voru hátt staðsett-
ar og togvinda framantil.
Þessi maður er án öryggisbeltis við störf í skutrennu og því er hann engan veginn
óhultur.
Maður handleggsbrotnar
á togara
Nr. 15. — Mánudaginn 7. júní
1976. — Álit nefndarinnar: Orsök
slyssins var sú að hlerinn sat ekki á
þilfarinu þegar skorið var á
möskvann.
Háseti slasast á togbát
Nr. 16. — Þriðjudaginn 29. júní
1976. — Álit nefndarinnar: Orsök
slyssins var vangá, þar sem „húkk-
reipi“ var fest í óskálkaða lúgu.
Háseti slasast á togbát
Nr. 17. — Sunnudaginn 4. júlí
1976. — Álit nefndarinnar: Vangá
við stjórn spilsins.
Háseti slasast á
skuttogara
Nr. 18. — Sunnudaginn 18. júlí
1976. — Álit nefndarinnar:
Óhappaslys. í sambandi við þetta
slys vill nefndin enn áminna menn
um að þegar óklárast, athugi þeir
vel allar aðstæður áður en hafist er
handa. Þá bendir nefndin og á
mikilvægi þess að gott samband sé
milli þeirra, sem stjóma og hinna,
sem framkvæma verkin, þannig að
ekkert fari á milli mála.
306
VÍKINGUR