Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Síða 30
*
1
gwíSSíi
HSÍS»''s*<S
m ' I
■
■iÁý&S
. ” ♦ • * ■
; - *>'' -
Eftirlíking af fornu, japönsku hofi, gert úr platinum, silfri, ostruskeljum og 12.750
perlum.f Sérstætt listaverk.
allar byggðar upp í grundvallar-
atriðum, af reynslu brautryðjand-
ans, en hann stóð, sem nú heitir K.
Mikimoto & Company, stærst
þeirra og fullkomnust og eins og
áður er sagt risafyrirtæki. Þar
ræður nú ríkjum sonarsonur
gamla mannsins.
Talið er að engin ræktun, eða
framleiðsla, krefjist jafnmikillar
nákvæmni, kunnáttu og aðgæslu
og perluræktun, auk þess hversu
tímafrek hún er. Mörg ár líða frá
því að aðskotahlutnum er faglega
komið fyrir í skelinni, þar til ostr-
arn hefur myndað nægilega mörg
lög utan um kjarnann, til þess að
nægilegri stærð er náð, og svo
getur ostran drepist af ýmsum og
margvíslegum ástæðum, á þessu
langa tímabili. Þessvegna verður
fjöldi „móður“-ostrunnar að vera
mikill, svo að afföll verði ekki til-
finnanleg.
Fjöldi fólks vinnur á ræktunar-
stöðvunum, aðallega stúlkur, sem
þjálfaðar hafa verið til starfans.
Strangt eftirlit er haft með því að
rétt sé staðið að framleiðslunni.
Ostrurnar eru undir stöðugu eftir-
liti. Hreinsa þarf hin mörgu víð-
áttumiklu búr og sama gildir um
skeljarnar. Hitastigið þarf að vera
rétt og fóðrunin nákvæm. Þegar
svo loks að skelin opnast,
sjálfkrafa, eftir vissa meðhöndlun
og í ljós kemur falleg perla, er
engin ástæða til að hrópa húrra,
því að enn er mikið starf óunnið,
eins og til dæmis nákvæm rann-
sókn, stærðarflokkun, gæðaflokk-
un, litaflokkun og hreinsun, auk
margs annars, sem hér verður ekki
talið.
318
VÍKINGUR