Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 31
verða nú í 2. stigi hér í Reykjavík. Ákveðið er að hafa vélstjóra- braut við Fjölbrautarskólann á Akranesi, sem er nú að fara af stað, þar verða 8 nemendur i 1. stigi í vetur. Þetta er nýjung í okkar skólamálum og er vafalaust það sem koma skal. Ég óska Suð- urnesja- og Skagamönnum til hamingju með þessar skólastofn- anir þeirra. í Vélskólanum verða 18 bekkj- ardeildir, er skiptast þannig: í 1. stigi verða 4 bekkjardeildir. Neita Frétt f rá Vélskóla fslands Andrés Guðjónsson, Vélskóli Islands er nú settur í 62. sinn. Aðsókn að skólanum hefur vaxið ár frá ári, tæplega 400 nemendur eru innritaðir hér í Reykjavík. Neita þurfti um 20—30 nemendum í skólann vegna hús- næðisskorts og tækjaleysis, en 10 eru á biðlisía og er vonast til þess að þeir komist í skólann í stað þeirra, sem falla frá umsókn. Á Akureyri verða 17 nemendur í 1. stigi og 12 í 2. stigi. Á ísafirði verður 21 nemandi í 1. stigi, 8 1 2. stigi og 10 nemendur í 3. stigi og er það í fyrsta sinn sem 3. stig er haldið utan Reykjavíkur. I Vest- mannaeyjum verða 12 í 1. stigi og 10 í 2. stigi. Fjölbrautarskóli Suð- urnesja verður með vélstjórabraut nú í annað sinn og 18 nemendur í 1. stigi. 4 nemendur frá Keflavík VÍKINGUR varð nemendum um inngöngu sem svarar einni bekkjardeild. í 2. stigi verða 5 deildir. Iðn- sveinar eru 20, en þeir verða sam- an í einni deild. 10 nemendur hafa sótt um að fá að taka 1. og 2. stig saman og verður þetta í fjórða sinn sem slík deild er við skólann. Eru þetta nemendur með stúdentsmenntun. I 3. stigi verða 5 bekkjardeildir, 12 nemendur koma frá Akureyr- ardeildinni. í 4. stigi verða 4 deildir. Nú verða efna- og eðlisfræði- stofur þær er Tækniskólinn hafði, teknar í notkun fyrr Vélskólann eftir allmiklar lagfæringar. Verður tækjum skólans til olíurannsókna og efnamælinga komið fyrir þar. Reynt verður að afla fleiri tækja Ágrip af ræðu Andrésar Guðjónssonar skólastjóra við skólasetningu 10. sept. ’77 eftir því sem fjarmunir hrökkva til og fjárveitingavaldið verður skilningsgott á þarfir Vélskólans fyrir verklega (praktíska) kennslu, en Vélskólinn hefur t.d. aldrei haft eðlisfræðistofu fyrr. Smíðastofur, vélasalir og raf- tækjasalir eru alveg fullnýttir. Bætt hefur verið aðstaða í smíða- stofum og komið fyrir fleiri skrúf- stykkisborðum til a(i taka við nemendafjölguninni. Tveir nýir rennibekkir hafa einnig bæst við. Sama er að segja um stóra vélasalinn, þar hefur verið gjör- breytt vélbúnaði, garnlar vélar verið fjarlægðar og eigum við von á nýrri vél sem Caterpillarum- boðið ætlar að gefa skólanum. Við skólasetningu kom bréf frá Vélaverkstæði Björns og Halldórs h.f. í Reykjavík, þar sem þeir til- kynna, að þeir ætli að gefa skól- anum nýja Cummingsvél, 210 hestöfl að stærð. Vélin er smíðuð í Cummings-verksmiðjunni í Eng- landi. Verður hún afhent eftir 4—6 vikur og ætlar vélaverkstæðið að afhenda vélina á undirstöðum á- samt mælaborði o.fl. Þessar gjafir frá Caterpillar- og Cummingsumboðunum eru okk- ur mjög kærkomnar, þær kosta margar milljónir króna, en pen- ingar til véla og tækjakaupa hafa alltaf verið af skornum skammti. Ég vil því þakka þessar gjafir svo og þann vinarhug og traust sem skólanum er sýndur með slíkum gjöfum. 319

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.