Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Blaðsíða 32
Mvndin er frá einu hinna fjölmennu snjöflúðanámskeiða á vegum félagsins, sem haldið
var á Siglufirði í febrúar 1979. Þarna voru sanian á æfingu 52 félagar úr bjsv. SVFÍ, HSS,
Blönduósi og FBS Akureyri úr SVFÍ umdæmi 6, er nær úr Hrúlafirði og auslur fyrir
Eyjafjörð. Eeitarflokkur heldur áfram störfum með sérstaklega gerðum snjóflóðastöng-
um á rneðan aðrir grafa upp „mann“ sem fundist hefur í fönninni.
fyrir sl. ár og lýsti ánægju sinni yfir
þeim mörgu verkefnum sem hægt
hefði verið að sinna og þeim
framkvæmdum sem lokið hefði
verið við. M.a. var tilgreind 24
tíma varðstaða Tilkynninga-
skyldu ísl. skipa allt árið og sam-
þykkt reglugerð um smíði og eft-
irlit með smábátum 6 m og styttri,
sem verið hefur baráttumál SVFÍ
um langan tíma. Þá var í áliti
nefndarinnar sérstaklega vikið að
mikilvægi erindreksturs á vegum
félagsins til slysavarnadeilda og
björgunarsveita. í sambandi við ár
barnsins voru deildir félagsins
hvattar til að efla unglingastarfið
og beina hugum barna og ung-
linga að hinu margháttaða og
merka starfi SVFÍ. í því sambandi
var lagt fram á þinginu álit sér-
stakrar nefndar um félagsstarf og
verkefni ungliðadeilda innan
SVFÍ.
Umferðarnefnd þingsins skilaði
mörgum ályktunum varðandi
þennan þátt slysavarnastarfsins og
hvatti slysavarnadeildir til að
fylgjast vel með framvindu um-
ferðarmála í sinn heimabyggð,
fræðslu í skólum landsins og
meðal almennings í samráði við
32
þá aðila, sem þessi mál heyra
undir. Þá kom glögglega fram
mikill áhugi meðal þingfulltrúa að
sérstakar umferðarvikur væru
nauðsynlegar á sem flestum stöð-
um á landinu, en þær mundu
stuðla mjög að bættri umferðar-
menningu og vektu almenning til
umhugsunar um þetta mikla
vandamál.
Þá voru deildir félagsins hvattar
til að beita sér fyrir notkun og
dreifingu endurskinsmerkja í enn
ríkara mæli en verið hefðu og sér-
stök áskorun var samþykkt til
stjórnvalda að tilgreina blóðflokk
handhafa ökuskírteina við útgáfu
nýrra skírteina og endurnýjun
gamalla.
Slysavarnanefnd, hafði til með-
ferð margar tillögur eins og
jafnan á SVFÍ þingum. í ályktun
nefndarinnar í tengslum við Til-
kynningaskyldu ísl. skipa var
þeim óskum beint til stjórnvalda
að veita fé til aðkallandi endur-
bóta, og uppbygginga strandar-
stöðva svo að póst- og símamála-
stofnunin geti fullnægt þeim
kröfum, sem til hennar eru gerðar
í lögum um Tilkynningaskyldu ísl.
skipa frá 13. mai 1977.
Þá var gerð samþykkt um fjar-
skiptabúnað í opnum vélbátum 5
brl. og stærri, og þessir bátar þar
með tilkynningaskyldir að lögum.
Vegna hinna hörmulegu sjóslysa í
vetur og umræðna að undanförnu
um gúmbjörgunarbát, samþykkti
landsþingið ýmsar ályktanir varð-
andi þau mál.
Að sjálfvirkir neyðarsendar
með flugvélatíðninni 121.5 Mhz
verði settir í alla gúmbjörgunar-
báta og pakkaðir með þeim. Að
settur verði sjálfvirkur sleppibún-
aður við gúmbjörgunarbáta og að
gúmbjörgunarbátar verði pakk-
aðir í plasthylki.
í ályktun nefndarinnar var
beint þeim eindregnu tilmælum til
Veðurstofu íslands að strandar-
stöðvar L.í. og útvarp tilkynni
stormviðvaranir hvenær sem við
á. Þá voru samþykktar ábendingar
til þeirra, er stunda fjalla og ör-
æfaferðir um að vera vel búnir og
hafa meðferðis vatns- og vind-
heldar skjólflíkur í skærum lit.
Sérstaklega voru rjúpnaskyttur
hvattar til að hafa meðferðis
merkjaskot og láta vita um brott-
för og komutíma hverju sinni. Þá
var skorað á þá sem selja veiði-
leyfi, að hvetja alla til að gæta
fyllsta öryggis í veiðiferðum og
tilkynna hvenær veiðiferð lýkur.
Þá var stjórn félagsins falið að
ræða við sjávarútvegsráðuneytið
vegna framkominnar tillögu og
ábendinga um þá miklu hættu,
sem svipting veiðileyfa netaveiði-
báta hefði í för með sér, ef ráð-
stafanir í fiskverndunarmálum
stuðluðu jafnvel að of harðri sjó-
sókn á stundum.
Fundur umdæmisstjóra
Á 17. landsþingi var samþykkt
að hefjast handa um skiptingu
landsins í ákveðin umdæmi með
tilliti til staðsetningar björgunar-
sveita félagsins, fjölda þeirra og
verkefna. Nú hefur verið lokið við
þessa umdæmaskiptingu og hefur
VÍKINGUR