Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Blaðsíða 49
m
STRANDFER.JUR í SVÍÞJÓÐ
Bæði Álandseyjar o« Golland húa við góðar ferjusamgöngur, og það sania má segja uni
Borgundarhólm. Gotlandssiglingarnar eru þannig að um fjórar ferjuleiðir er að ræða að
sumarlagi frá Svíþjóð, en tvær í skammdegi. Þrjár ferjuleiðir eru til Álandseyja. Myndin
er af einni af sænsku ferjunum.
er hvað ferjuleiðum hefur fjölgað
milli staða, sem má aka að mestu á
milli á bílum. Gott dæmi um það,
er að nú hefjast innan skamms
öflugar siglingar með farþega og
bíla milli Hamborgar og Harwich
á Bretlandi. Þjóðverjar munu nota
6000 og 8000 tonna skip og hafa
skipulagt víðtækt sölustarf á gist-
ingum, m.a. á bóndabæjum
(guesthouse) í norðanverðu
Þýskalandi til að greiða yfrir
þessum fólksflutningum.
Það vita allir að unnt er að aka
yfir til Frakklands frá Þýskalandi
og skjótast yfir sundið á ferju.
Samt kjósa flestir heldur að sigla
þessa leið.
Færeyingar búa við
góða ferjuþjónustu
Færeyingar hafa ekki gleymt að
gera vegi heima hjá sér einsog ís-
lendingar, sem einsog áður sagði
búa við frumstætt vegakerfi einir
Evrópuþjóða.
Færeyingar geta ekið bílum til
meginlands Evrópu.
Sameinaða gufuskipafélagið
danska DFDS heldur uppi ferju-
siglingum til Færeyja. Sigla skip
félagsins vikulega milli Dan-
merkur og Færeyja. Sigla á
mánudögum frá Esbjerg á Jót-
landi (skammt frá þýsku landa-
mærunum) og frá Þórshöfn á
miðvikudögum. Þessar ferjur taka
6—700 farþega og um það bil 230
bíla. Þær eru troðfullar á
annatíma.
Fareoship A/S sigla síðan
vikulega 7. júní—13. september
milli Þórshafnar og Bergen í Nor-
egi. Kostar farið 420 danskar
krónur fyrir manninn og undir
bílinn kostar 315 krónur danskar.
Þetta er Smyrill, sem einnig siglir
til Seyðisfjarðar og til Scrabster á
Skotlandi.
Af þessu sést að Færeyingar eru
mun betur settir en íslendingar,
og hafa viðunandi siglingar að
þessu leyti.
Samnorrœna ferjan
Norðurlandaráð hefur á und-
anförnum árum fjallað um sam-
norræna bílferju, sem smíðuð yrði
á kostnað Norðurlandanna.
Nefndir og undirnefndir hafa sýnt
fram á að slíkur ferjurekstur á að
verða arðbær (þó nú væri). Málin
standa nú þannig að Færeyingar,
sem eiga að gera skipið út og reka
það, ef af verður, eiga eftir að
svara. En til mála kemur einnig að
Færeyingar kaupi sjálfir stórt far-
þegaskip og taki þessar siglingar í
sínar hendur.
Er málið í sjálfheldu á meðan.
Hér hefur verið gert stutt yfirlit
yfir siglingar með bíla og farþega
og vörur, eða svonefndar ferju-
siglingar nútímans, sem er blóm-
legur atvinnuvegur. Það er engin
afsökun að íslendingar séu of fá-
menn þjóð fyrir ferjuskip. Það er
búið að afsanna með útreikning-
um sérfræðinganefndar Norður-
landaráðs. Það er aðeins dáðina
sem skortir, það dáðleysi er því
veldur að nútímaþjóðin íslend-
ingar, sem tileinkað hefur sér alla
mögulega tækni, býr við frum-
stæðasta vegakerfi í Evrópu (eða
eigum við að segja í öllum heim-
inum heldur?)
Bílaeign er mikil á íslandi, og
með því að opna vegasambandið
við meginlandið, myndi ferða-
mannastraumurinn aukast veru-
lega til landsins — ferðamanna-
tíminn líka, og vöruleiðir opnast.
JG tók saman.
O
Það er glatt á hjalla í flugstjórnar-
klefanum. En eftir fimmta viskí-
glasið segir flugstjórinn:
Jæja, nú drekk ég ekki meira. Ég
er með bílinn minn á vellinum.
VÍKINGUR
49