Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1984, Blaðsíða 14
Fengum bara...
flestum málum, en blanda
flokkapólitikinni sem minnst
inn i það. Ég held aö menn
sem sitja lengi i sömu störfum
hafi tilhneigingu til að blanda
pólitikinni meira og meira inn i
störf sin og það er mann-
skemmandi."
Verst þaö sem viö
vildum sjálfir
„Það varð að reyna eitthvað
og sú leið sem var farin var
kannski ekki verri en aðrar. En
þvi miður held ég að það, sem
menn eru óánægðastir með,
sé það sem við höfum farið
fram á sjálfir og ráðherra hefur
tekið ákvaröanir um í sam-
ræmi við óskir þrýstihópa,
jafnvel gegn betri samvisku.
Ég held að eitt mesta vanda-
mál, sem við islendingar höf-
um staðið andspænis i mörg
ár, sé sjávarútvegsstefnan og
þar með stefna þjóðarinnar i
heild. En ég held að Halldór sé
góður sjávarútvegsráðherra."
Hér var hætt spjallinu og
undirritaður fór út í rigninguna
til að koma sér á næturstað á
Höfn, en Örn beið sólarinnar i
sumarbústaönum í Lóni. Sú
bið varð aðeins til næsta
morguns.
SV.
Raunir skipstjórans
Hundeltur af spilltum embættismönnum
„Næstur Guði“ þetta
orótak hefur verið notaó
um stöóu skipstjórans í
góöu og illu. Ónafngreind-
ur skipstjóri telur auósjá-
anlega með því sem á eftir
kemur, aö hió himneska
konungsríki sé aö mestu
hruniö undir sér. Frásögn
hans er eftirfarandi: í
Bandaríkjunum lenti ég í
krítískri yfirheyrslu er
framkvæmd var af Coast--
guard ungmenni meó
barnsandlit. Ef honum
tekst ekki aö finna ein-
hverja galla, hótar hann
400 dollara sekt, ef svo
mikið sem kaffibolli af olíu
sleppi út í hans skítuga fljót
eöa forugu höfn. Fari ég í
gegnum Súez-skuröinn og
hafnsögumaðurinn kemur
ekki viö lóösstöðina, vakn-
ar spurningin um hvort ég
eigi aö bíöa eftir næsta
„konvoj" (skipalest) og fá
skammir frá útgerðinni,
eða á ég að taka áhætt-
una, sigla nær, inn á lóðs-
svæóiö vitandi um þaó að
eiga á hættu aö fá £ 1250
sekt og 12 mánaða tukthús
aó auki. Ef ég gerði þetta
myndi lóðsinn örugglega
birtast.
Þegar ég leggst aó
bryggju í Saudi-Arabíu, fæ
ég lög og hafnarreglu-
gerðir upp á 327 síður.
Meðan ég pæli í gegnum
þessar 327 síður, umsnýr
tollarinn öllum mínum eig-
um í leit aó kjaftfylli af öli,
eða brennivínsdreitli, hann
umturnar og flettir öllum
blöðum, í von um að finna
mynd af fáklæddri konu,
og fyndist slík mynd þá
væri kominn hvalreki til
sektar. Sé áhafnarmeðlim-
ur staðinn aó því aö drekka
úr ölkrús er ég bókaður
með 200 svipuhögg við
staur í landi, auk 6 mánaða
tugthúsvistar til uppbótar.
Er þetta ekki nóg?
Á einni ferð fann ég út
eftir bestu útreikningum,
aó ég mundi fá sektir ca. £
9000, 200 svipuhögg og
21/2 ár í tugthúsi.
Ég hef siglt á hafsvæó-
um þar sem grófir og skot-
glaðir „sjóræningjar" gera
óskunda. Ég hef orðið að
taka hafnsögumenn sem
neita allri ábyrgð, hvað
sem fyrir kemur. Ég hef
orðið að skrifa undir yfir-
lýsingar um allt mögulegt
sem mundi valda hverjum
lögfræðingi yfirliði við yfir-
lestur.
Ofan á allt þetta, hefur
skip mitt verið heimsótt af
ýmsum rannsóknarfulltrú-
um, fylgt eftir af fallbyssu-
bátum, þyrlum og rann-
sóknarflugvélum, langt frá
landi. Svo mörg voru orð
hins raunamædda skipt-
stjór.
(Lauslega þýtt úr ensku
sjómannaþlaði.)
Sigurbjörn Guðmundsson
Víkingur 14