Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1984, Side 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1984, Side 17
FELAGSMAL vélarrúmi frá þeim lögum sem í gildi eru bæði í Noregi og Finnlandi. Fundarmenn voru sammála um að með fram- kvæmd þessara laga væri verið að fara út á mjög hættulega braut "— bæði hvað varðar öryggi skipanna og ekki síst hvað varóar hag- kvæmni þeirra. Viðhaldsvinna mun færast í auknum mæli til verkstæða í landi og því verða dýrari en framkvæmd um borð í viðkomandi skipum. Búast mætti við að þessi taumlausa fækkunartilhneig- ing muni leiða það af sér að flutningaskip tefjist vegna bil- ana og því væri nokkuð Ijóst að áætlanir skipa raskist í næstu framtíð. Mannafækkun virðist vera í tísku hjá útgerð- arfélögum, en eins og al- kunna er hefur tískan sjaldn- ast tekið tillit til hagkvæmni eöa vitrænna leiða í tiltektum sínum og því ekkert undr- unarefni hvert stefnir sé hún höfð aö leiðarljósi. Danmörk virðist vera eina Norðurlandið þar sem ekki hefur verið taumlaus árátta útgerðarmanna í þá átt að fækka í áhöfnum kaupskipa. Það kom fram hjá dönsku fulltrúunum að í Danmörku væri ekki mikið sótt í að fækka í áhöfn. Ástæðan væri ein- faldlega sú, að danskir út- gerðarmenn teldu hag sinn í hættu ef það væri gert og í dag sigla sum farskip Dana með fleiri í vél en gildandi lög segja til um. Fyrir danska þjóðþinginu liggur frumvarp til laga um mönnun skipa. í þessu frum- varpi er kveðið á um þá menntun og starfsreynslu, sem uppfylla þarf til þess að geta gegnt þeim störfum sem sérstök atvinnuréttindi þarf til að sinna. í þessu frumvarpi er ekki tilgreint hversu margir skuli starfa í vél eða brú — aðeins hvaða menntun og starfsreynslu þurfi til að gegna störfum þessara manna miðað við ákveðna stærð aðalvélar og skips. Fjöldinn verður því ákvarð- aður af viókomandi útgerð og stéttarfélagi. Að samantekt þessa frum- varþs er þannig staðið að viðkomandi ráðuneyti skipar starfshóp til þess að vinna efnisþætti frumvarpsins. í þessum starfshópi eiga ekki sæti fulltrúar frá viðkomandi hagsmunaaðilum, yfirmönn- um skipanna og útgerðum þeirra. Þegar lokið er við að semja frumvarpið er það sent hagsmunaaðilum til umsagnar. Frumvarþið, ásamt umsögnum, fer síðan fyrir danska þingiö, sem trú- lega afgreiðir það á næsta vetri. Dönsku fulltrúarnir sögðu að mikil óánægja ríkti hjá danska vélstjórafélaginu vegna þessa máls. Þeirra umsögn myndi fyrst og fremst fjalla um nauðsyn þess að einhver rammi yrði settur um mannafjölda skipa þó þeir gerðu sér grein fyrir því, að erfitt væri að binda slíkt ein- göngu við stærð skips og aðalvélar. Þar væri ekki um algilda viðmiðun að ræða, til að ákveða fjölda starfsmanna í vélarrúmi. í beinu framhaldi af umfjöllun um fjölda vél- stjóra um borð í flutninga- skiþum var rætt um menntun- armál þeirra og breyttar for- sendur í þeim efnum. Með til- komu fámennis í vélarrúmum verður verkleg þjálfun þess- ara manna að fara fram að miklu leyti áður en komið er um borð í skipin. Þjálfunin verður að fara fram í viðkom- andi skólum, sem ráða ekki allir yfir nauðsynlegum bún- aði til þjálfunarinnar. Fundar- menn voru sammála um að til þess að mögulegt sé að upp- fylla kröfur tímans í þessu efni þá verði viðkomandi vélskólar að taka upp kennslu með samlíki, en margir skólanna hafa þegar hafið þessa ken- nslu. Margir skólanna eiga þetta kennslutæki en ekki allir. Vélskóli íslands er ekki eigandi samlíkis. Til þess að Kennslutæki í vél- fræði, skipslíkan með hinum ýmsu lögnum og skynjur- um mæla. Með þessu tæki er stjórnpúlt með mælum, sem ekki sést á myndinni. Fundarmenn voru sammála um að til þess að mögulegt sé að uppfylla kröfur tímans íþessu efni, verði vél- skólar að taka upp kennslu með samlfki. 17 Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.