Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1984, Side 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1984, Side 37
Skólaslit...____________________ Gestir og gjafir þeirra Fjölmenni var viö skóla- slitin og voru fjölmargir full- trúar afmælisárganga mætt- ir. Elsti prófsveinninn, sem mætti hélt upp á 70 ára próf- afmæli. Hann er Jón Högna- son fyrrv. skipstjóri á togar- anum Gulltoppi og fleiri skipum. Jón Högnason er fæddur árið 1891 og lauk hann prófi frá Stýrimanna- skólanum áriö 1914. Skólastjóri bauö Jón Högnason sérstaklega vel- kominn og sendi Jóhanni Stefánssyni fyrrv. skipstjóra á togaranum Geir kveðju, en hann útskrifaöist einnig í ár- ganginum 1914. Að liðinni hálfri öld. Af hálfu 50 ára prófsveina talaöi Ingólfur Möller fyrrver- andi skipstjóri. Fjórir þeirra skólabræöra eru á lífi og gáfu þeir 10.000 krónur i Sögusjóö Stýrimannaskólans meö svohljóöandi ummælum: „Gjöfin á aö vera tákn þess, aö viö stöndum i þakklætis- skuld viö skólann, sem bjó okkur undir lifsstarfiö.“ Undir jaetta rituöu þeir fjórir: Bogi Ólafsson, Ingólfur Möller, Jón S. Þorleifsson og Páll Hann- esson. Þeir gáfu einnig Bóka- safni Stýrimannaskólans nýútkomna, veglega islenska oröabók í útgáfu Menningar- sjóös, sérstaklega áletraöa til skólans. Gjöfin ertil minningar um sjö skólafélaga þeirra og eru nöfn þeirra skrifuð i bók- ina, en þeir voru: Björn Guö- mundsson, Einar Halldórsson, Guöni Thorlacius, Hannes Scheving Jónsson, Helgi E. Eiriksson Kúld, Kristján Jó- hannesson, Markús F. Sigur- jónsson. Bók þessi er hinn mesti kjörgripur meö nöfnum þess- ara heiðursmanna og vitnar bæöi um smekk gefenda og ræktarsemi viö æskuvini og dýrmætustu eign þessarar þjóöar, islenskatungu. Frá 30 ára, 20 ára og 10 ára nemendum. Þorkell Páll Pálsson flutti skólanum kveöju 30 ára nem- enda úr farmannadeild og gáfu þeirfélagar 30.000 krón- ur i Sögusjóðinn. Af hálfu 20 ára nemenda úr fiskimanna- deild talaöi Hjörtur Hermanns- son. Hann flutti hlýjar kveðjur og minntist fyrri daga i skólan- um. Þeir bekkjarbræöur úr fiskimannadeild sendu sióan skólanum 30.000 krónur meö þessari kveöju: „20 ára fiski- mannadeildarstrákar“ sem senda skólanum kveöju í minningu góöra daga.“ Dag- þór Haraldsson stýrimaöur og Ásgeir Gunnlaugsson fluttu kveöju 10 ára nemenda og veröur siöar tilkynnt um gjöf þeirratilskólans. Sýna í verki að þeir virói og meti... Þá kvaddi sér hljóös Arnór Sigurðsson skipstjóri frá isa- firöi, en Sölvi Arnar sonur Arn- órs og konu hans Guðrúnar Huldu Jónsdóttur lauk skip- stjóraprófi 2. stigs frá Strýri- mannaskólanum nú i ár og voru þau hjónin bæöi við skólaslitin. Sjálfur lauk Arnór hinu meira fiskimannaprófi áriö 1952. Hann er þekktur skipstjóri og sjómaöur vestra. Þrir synir þeirra hjóna hafa lokið skipstjórnarprófi 2. stigs frá Stýrimannaskólanum, Gunnar Albert áriö 1973 og Sigurður Guömundur áriö 1980. Arnór skipstjóri sagði m.a. i ávarpi sinu: „Mér og konu minni er sérstök ánægja aö vera viöstödd i dag og viö óskum skólanum farsældar um alla framtíð. Þaö ætti að vera metnaður islenskra sjó- manna, sem menntast vilja til skipstjórnar, að reyna aö Ijúka námi frá þessum höfuðskóla íslenskar skipstjórnarmennt- unar, sjálfum sérog landi sinu til hagsbóta. Sýna þaö í verki aö þeir viröi og meti alla þá, sem vilja veg skólans sem mestan og aö islenskir skip- stjórnarmenn verði ekki öörum eftirbátar i siglinga- fræðslu. Ég vil harölega mót- mæla framkomnu frumvarpi á Alþingi, þar sem lögvernda á aö gefa út undanþágur til skipstjórnar. Ég óttast aö þá muni stórlega draga úr aö- sókn i skólann, heldur reyni menn aö senda inn umsókn til viðkomandi ráðuneytis um at- vinnuréttindi. Þetta er gerræði; bæöi gagnvart skólanum og eins öllum hinum, sem lokið hafa námi þaðan. Ég las ný- lega i blaði, þar sem sagt var aö besta fjárfesting væri i menntuðum einstaklingum. Mér finnst, aö þaö eigi ekkert siöur viö skipstjórnarmenntun en aöra menntun. Hr. skóla- stjóri, ég afhendi þér þessa gjöf frá okkur hjónum um leið og við biöjum Stýrimanna- skólanum blessunar um alla framtið." Aö svo mæltu afhenti Arnór skólastjóra kr. 25.000, sem renna mun i Sögusjóö skól- ans, sem hefur nú bæst veru- lega i, svo aö myndarlega veröi hægt aö minnast Stýri- mannaskólans á 100 ára af- mæli hansárið 1991. Það ætti að vera metnaðu ís- lenskra sjó- manna, sem menntast vilja til skipstjórnar, að reyna að Ijúka námi frá þessum höfuðskóla ís- lenskrar skip- stjórnarmennt- unar, sjálfum sér og landi sínu til hagsbóta. 37 Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.