Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1991, Blaðsíða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1991, Blaðsíða 24
Smásaéa Friðrik Indriðason blaðamaður Birgir Andrésson teiknaði 24 VÍKINGUR Mér er meinilla við að vera ónáðaður á iaugardags- morgnum, enda tel ég þá einhverjar bestu stundir vikunnar. Vinnu- vikan að baki og tveggja daga frí framundan. Þessum stundum er því best varið í rúminu, í þægilegu móki milli svefns og vöku að velta fyrir sérþeirri tilfinningu að vera sjálfs sín herra næstu tvo sólarhringana. En Óli vinur minn skilur ekki þetta hugarfar daglaunamanns, enda hefur hann aldrei mér vitanlega kynnst níu til fimm dæminu. Hann hefur ætíð lifað mjög erilsömu lífi við alls- konar brask og bríarí, ýmist syndir hann í seðlum eða á ekki fyrirnæstu máltíð. Og hann skammast sín ekkert fyrir að hringja í mann um dagmál á laugardegi, óðamála og allur á innsoginu að venju. Um leið og ég svara í símann dembist rödd Óla Inn í hlustina án frekari formála: „Heyrðu gamli, þú varst einhvern tíma í sveit, var það ekki?" spyr hann og er nokkuð niðri fyrir. „Jú, það passar, ég var einu sinni í sveit. “ „Æði, þá hlýturðu að hafa vit á hestum, “ segir Óli. „Haaa?“ „Já, sko málið er það að ég er búinn að eignast hest og þarf að athuga hvort eitthvert vit er í honum. Mér skildist á eigandanum að þessi hest- ur væri með eitthvert númer, B-eitthvað, ég náði þvi ekki alveg, og því töluvert vit í þessum kaup- um, ef kaup skyldi kalla...“ „Bíddu aðeins hægur." Mér tekst að stöðva orðaflauminn úr Óla um stund. „Bíddu aðeins við. Ertu að segja mérað þú hafir eignast hest með ættbókarnúmeri?" spyr ég svoldið gáttaður. „Einmitt," hrópar Óli. „Það var það sem karlinn sagði: ættbókarnúmer. Erþað ekki eitthvað alveg ægilega smart?" „Jú, það má víst orða það þannig en hvernig í djöflinum tókst þér að eignast svona hest? Þeir kosta víst skildinginn, “ segi ég. „Sko, það er löng og flókin saga en málið er að þessi hestur er núna í girðingu uppi í Mosfells- sveit og ég ætlaði að athuga hvort þú værir ekki til í að koma með mér nú á eftir og kíkja á gripinn. Sko, ég ætlaði að biðja þig að líta á hestinn og segja til um hvort þetta væri ekki ekta græja og svo framvegis og..." „Ókei, ókei, ég skalkom með þérþarna uppeft- ir og líta á þetta, “ svara ég. „Æði, ég næ íþig eftir hálftíma, sjáumst, “ segir hann og skellir á. Ég kem mér á lappir og í fötin. Fer fram í eldhús og hita mér te. Það er komið fram að lokum apríl- mánaðar og út um eldhúsgluggann minn á Njáls- götunni sé ég að birkihríslurnar í bakgarðinum eru farnarað laufgast. Það erþungskýjað en þurrt og milt og varla hreyfir vind. Þegar ég hef lokið tedrykkjunni flautar Óli fyrir utan. Honum hefur gengið sæmilega þennan veturí braskinu og ekur nú um á 2ja ára gömlum BMW. Óli er fremur hávaxinn og grannholda, Ijóst hárið farið að þynn- ast og myndarleg kollvik ganga aftur af háu enni hans. Hið eftirtektarverðasta við andlit hans eru glettin augun sem gefa stöðugt í skyn að lífið og tilveran séu í hæsta máta skopleg að hans mati. Hendur hans eru smáar og fínlegar og hann sveiflar þeim stöðugt, orðum sínum til áherslu. Á leiðinni upp í Mosfellssveit segir hann mér hvernig hann varð hesteigandi. „Sko, manstu eftir að Mása meik og hans klíku tókst að pranga inn á okkur strákana þessum tveimur Blazerjeppum um daginn og við létum þá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.