Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1991, Blaðsíða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1991, Blaðsíða 26
B-EITTHVAÐ Smásaáa 26 VÍKINGUR fá þessa vafasömu víxla frá Siglufirði sem við héldum að við gætum ekki komið í verð, “ byrjar Óli á fullu gasi. Ég læt þess getið að ég hafi aldrei heyrt á Mása meik minnst áður en man að strákarnir eru þrír kunningjar Óla sem stunda með honum viðskipt- in. „Skiptir engu máli, “ heldur Óli áfram. „Megi hann stikna íhelvíti ódámurinn. Allavega gengum við inn i þessi kaup því við vissum að við gátum losað okkur við jeppana fyrir fimm hundruð fisk- kassa suður í Kópavogi. Vandamálið var að koma þessum fiskkössum í verð en Gummi granni vissi um náunga í Álfheimum sem átti bíl- skúr fullan af sælgæti og kannski væri hægt að skipta við hann á fisskössunum og gottinu. Þú veist, gotti er alltaf hægt að koma í verð...“ Handapatið á Óla er orðið svo mikið þegar hér er komið sögu að ég verð að grípa í stýrið til að halda kerrunni á veginum. Hann lætur sem hann taki ekki eftir því og heldur áfram nær án þess að anda... „Þegar við töluðum við þennan gaur varhann jú tilbúinn að láta okkur fá gottið fyrir kassana en bara ef við gætum losað hann við vörubílsfarm af gúmmískóm á leið norður til Akureyrar til dreifing- ar í kaupfélögin... Ég gríp aftur í stýrið og spyr: „Bíddu aðeins, var sem sagt vörubíllinn á leið norður þá þegar?" „Já, þetta varþað sem við köllum í bransanum farmur á ferð en einhver heildsalablók fyrir norð- an, sem var viðtakandi, hafði sagt að hann gæti ekki borgað. Nú, við ræddum þetta mál aðeins okkar í millum og Gummi granni mundi allt í einu eftir að Mási meik á bróður fyrir norðan, einhvern stórgrósser, og eftir að hafa hringt í hann ákváð- um við að taka þennan farm að okkur. Bróðir Mása borgaði farminn að hluta til í seðlum og að hluta til með þessum hesti. Við fengum kaup- samninginn á faxi hingað suður..." „Og nú varst þú allt í einu orðinn hesteigandi gríp ég hér inn /'. „Ekkialveg. Hesturinn varmetinn á hálfa millu í þessum díl og minn hlutur í þessu kraðaki var um helmingur þeirrar upphæðar. Mér fannst alveg ómögulegt að eiga bara hálfan hest svo ég lét Gumma granna fá víxil fyrir afganginum og átti þá hestinn á hreinu. “ Hér gefur Óli sér tíma til að draga aðeins and- ann, greinilega nokkuð ánægður með sjálfan sig. Við erum komnir upp í Mosfellssveit, enda ekur ÓH nær hraðar en hann talar og brátt komum við að girðingu þar sem graðfoli stendur á beit. Við förum úr bílnum og göngum að girðingunni. Folinn ígirðingunni lítur upp og röltir svo rólega í átt til okkar. Þetta er einhver fallegasta skepna sem ég hefséðá lífsleiðinni. Hanner dökkur með hvíta stjörnu í enninu, mikill um bringuna með skásetta bóga og reistur vel. Er hann kemur nær sér maður kvik eyru og að undir miklum brúnum eru hvöss augu. Hann kemur alveg að okkur og hnusar aðeins utan í Óla. „Jeminn, “ segir Óli uppveðraður. „ Ég held að hann sé bara hrifinn af mér. “ En þegar Ijóst er að við erum hvorki með sykur- mola né brauðsneið handa honum missir folinn fljótlega áhuga á okkur og röltir á brott. „Ertu viss um að þið hafið fengið þennan grip á aðeins hálfa milljón?" spyr ég hissa. „Jamm, “ segir Óli. „Er sem sagt vit í þessu?" „Tja, ég hugsa að þetta sé mun verðmætari hestur en svo, “ segi ég. í þessum töluðum orðum rennir nýr Benz upp að okkur við girðinguna og vörpulegur náungi á miðjum aldri stígur úr honum. Hann kynnir sig og reynist hérkominn sjálfur stórgrósserinn að norð- an, bróðir Mása meik og fyrrum eigandi folans. Þegar hann uppgötvar hver Óli er segir hann: „Ég var einmitt að vonast til að hitta á þig hér. Ég ætlaði að athuga hvort þú vildir ekki selja mér folann aftur. “ Um leið og hann segir þetta dregur hann þykkt seðlabúnt upp úr vasanum og heldur áfram: „Ég myndi borga sama verð, hálfa milljón var það ekki?“ Óli horfir íhugull á seðlabúntið og segir svo: „ Veistu það vinur, ég hef mikið verið að velta því fyrir mér að fá mér eitthvert hobbý. Nú þegar ég hef eignast hest gæti ég vel hugsað mér að taka upp hestamennsku. Það er einhver stíll yfir því að vera hestamaður. “ Stórgrósserinn bætir fimmtíu þúsund krónum við tilboð sitt. Óli hugsar sig aðeins um og segir: „Þvi meir sem ég pæli í þessari hugmynd minni því betur líst mér á hana. Ég meina, það er talið ægilega smart í vissum klíkum í bænum að vera hesteigandi. Þetta gefur manni ákveðinn status í lífinu. “ Stórgrósserínn bætir enn fimmtíu þúsund krón- um við tilboð sitt. Óli réttir snimmhendis fram höndina og hrópar: „Samþykkt. “ Á leiðinni til borgarinnar aftur er Óli þungt hugsi framan af. Allt í einu dæsir hann þungt og segir: „Veistu það gamli, ég er alveg með eitt á tæru. Ég hefði auðveldlega getað fengið fimmtíukall í viðbót hjá þessum gaur. “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.