Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1991, Page 49
Thetis, eitt af nýju skip-
unum á siglingu.
eru nú í smíöum fjögur ný varð-
skip sem leysa skulu gömlu
skipin af hólmi. Fyrsta skipiö
hefur þegar veriö afhent nýju
eigendunum og var það gert
22. júní síðastliðinn. Hin skipin
verða síðan afhent á 10 mán-
aða fresti og búið er að sjósetja
skip númer tvö.
Fyrsta skipiö hefur hlotið
nafnið Thetis sem er grískt að
uppruna. Nafnið er fengið frá
herskipi sem Danir fengu frá
Englandi eftir seinni heims-
styrjöldina, en þar var hlutverk
þess að vernda skipalestir yfir
Atlantshafið og var það síðan í
þjónustu Dana til ársins 1963.
Lýsing á skipunum
Þessi skip eru hönnuð og
smíðuð hjá Svendborg Værft
A/S í samvinnu við tæknideild
sjóhersins (SMK) og Dwinger
Marineconsult A/S og eru um
2600 tonn að stærð, en til sam-
anburðar var Ingolf 1650 tonn
(og 72 metrar á lengd).
Aðalmál eru: Mesta lengd
112,00 m; lengd milli lóðlína
99,75 m; breidd 14,40 m; dýpt
að forskipsþilfari 13,00/13,25
m; að aðalþilfari 10,60/10,70 m;
að 2. þilfari 8,10 m; að 3. þilfari
5,70 m; særými 3500 tonn
(djúprista 6,00 m).
Skipin eru með tvöföldum
byrðingi upp að 2 metrum yfir
vatnslínu. Þau eru sérstaklega
styrkt til siglinga í ís og við smíði
skipanna er miðað við ísklassa
ICE-05 samkvæmt reglum Det
Norske Veritas. Efnisþykkt og
styrking sumra svæða skip-
anna er þó aukin enn frekar, að
fenginni reynslu frá„ Hvid-
björns-skipunum", og þannig
geta skipin siglt áfram snurðu-
laust þótt brjóta þurfi frá sér allt
að 1 metra þykkan fastaís með
skerstefninu. Mjög fullkominn
afísingarbúnaður er í skipun-
um.
Þar að auki er skipunum
skipt með vatnsþéttum þver-
skipsþiljum til að tryggja lág-
marksstöðugleika og nægjan-
legt flot sem tveggja rýmis skip
fyrir allt að 8 metra árekstrarrifu
á bol.
Ganghraði Thetis í reynslu-
siglingu var 21,4 hnútar. Afköst
aðalvéla við þennan gang-
hraða var 7940 KW og snún-
ingur á skrúfu 145 sn/mín.
Úthaldstími miðað við sam-
felldan 15,5 hnúta ganghraða
er 23 dagar eða 8500 sjómílur.
Olíunotkun miðuð við sama
ganghraða og 2600 KW út af
aðalvélum er um 12 tonn af
gasolíu á sólarhring.
Aðalvélar skipsins eru þrjár
meðalhraðgengar MAN-B&W
dísilvélar sem tengjast einum
sameiginlegum niðurfærslu-
og skiptiskrúfubúnaði með
tengslum við hverja vél, þannig
að hægt er að keyra út á skrúfu
eina, tvær eða þrjár vélar eftir
þörfum. Afköst aðalvéla eru
samtals 8820 KW.
Niðurfærslugírinn er frá
RenkTacke og við hann er
einnig tengdur 1500 KVA ásraf-
all. Önnurrafmagnsframleiðsla
er frá þremur 600 KVA Ijósavél-
um og að auki er ein 158 KVA
neyðarljósavél.
Skiptiskrúfubúnaður er frá
Kamewa, en á skipinu er hæg-
geng fjögurra blaða skrúfa,
4400 mm í þvermál.
Aðalvélarnar þrjár eru hver
fyrir sig í sjálfstæðu og vatns-
þéttu vélarúmi. Þetta þýðir, svo
dæmi sé tekið, að þó svo að
skipið verði fyrir skotárás eða
rifa komi á það (allt að 8 metra
löng), og gírrými ásamt tveimur
vélarúmum fyllist af sjó, getur
VÍKINGUR 49