Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Síða 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Síða 5
 F rjálst fiskverð er orðið staðreynd; við þá framtíð verða menn aö búa hvort sem þeim iíkar betur eða verr. Fleiri fiskmarkaðir munu verða stofnaðir á landinu og að lokum munu þeir tengjast inn- byrðis með tölvukerfum, sem verðurþá í reynd fiskmarkaður íslands. Samgöngur batna og eðlileg fiskmiðlun mun geta áttsérstað. Þegar fiskur verðuralmennt farinn að taka verðmynd- un á fiskmörkuðum og menn sjá sér ekki hag í öðru en að haga fiskveiðum með tilliti til þess að sem best verð fáist fyrir fiskinn hverju sinni, þá mun fiskverðskerfið auðvelda okkur fisk- veiðistjórnun og stuðla að aukinni hagkvæmni og betri nýtingu fiskstofnanna. Framtíðin hlýtur að þróast þannig að skip sem landa ferskum fiski og heilfrystum afla, munu þurfa að flokka fiskinn eftir stærð um borð í veiðiskipunum. Þessi þróun mun verða af sjálfu sér vegna þess að þá verður mögulegt að selja fiskinn um borð í skipunum áður en honum er landað. Stærðarflokkun er auðvelt að leysa með flokkara um borð og er einungis tæknilegt atr- iði. Þessi þróun mun taka nokkurárog ermis- munandi nauðsynleg vegna þess að sum veið- arfæri velja fiskstærð, t.d. þorskanet. Dag- merkingar munu segja til um aldur fisksins og veiðiskýrsla um veiðisvæði. Samgöngur á landi (vegakerfið) eru í dag sá þröskuldur sem tefja mun þessa þróun og á þann þátt mála verður að leggja aukna áherslu í framtíðinni. Öll önnur mótrök en lélegt vegakerfi eru létt- væg þegar litið er til framtíðar í þessum efnum. Haftastefna í þessum málum ersem betur ferá undanhaldi og sama frjálsræðishugsun verður að fá að taka við í sölumálum á fiski frá íslandi til annarra landa. Sölusamtök eiga eingöngu að myndast vegna hagkvæmni seljenda sjálfra en ekki vegna lögverndar, hvorki ísjávarútvegi né landbúnaði. F har hvalveiðibann brot á stjórnarskrá Is- lands? Þessa dagana stenduryfirí Reykjavík fundur Alþjóða hvalveiðiráðsins. Búið erað sýna fram á með rökum að hrefnustofninn og sumir stór- hvalastofnar þola vel veiði án þess að nokkur minnsta hætta sé á ofveiði. íslendingar eru algjörlega háóir fiskveiðum með sína efna- hagslegu afkomu og fiskveiðiheimildir okkar hafa minnkað jafnt og þétt s.l. ár. Þær þjóðir heims, t.d. í Vestur-Evrópu, sem mengað hafa hafsvæðin við strendur sínar svo mjög að sjávarspendýrum og fiskum er þar ekki lengur líft án sýkingar og síðar dauða, geta ekki með neinni sanngirni ætlast til þess að Islendingar taki að sérþað hlutverk að minnka sífellt fiskveiðar sínar svo íslandsmið geti tekið við því hlutverki að vera uppeldis- og verndar- svæði fyrir ört vaxandi fjölda sjávarspendýra, sem hingað leita í ómengað umhverfi ár hvert. Við getum ekki, viljum ekki og höfum ekki leyfi til að taka að okkur það hlutverk að verða fæðu- og fósturverndarstöð fyrir útsýnissjávar- spendýr veraldarinnar. Okkur ber að viðhalda jafnvægi í lífríki sjávar með því, meðal annars, aó taka nú þegar upp veiðar á hvalastofnum hér við land. Þjóðum heims væri nær að snúa sér að sínu eigin mengaða umhverfi og gera það aftur að líffræðilega góðu hafsvæði. Þar geta Vestur-Evrópubúar alið sín útsýnissjávar- spendýr fyrir framtíðina ef þeim sýnist svo. Við íslendingar getum heilshugar stutt alla í baráttu gegn mengun og erum samstiga Greenpeace-samtökunum að því leyti. Nátt- úruverndarsamtök veraldar verða hinsvegar að átta sig á því að stjórnarskrá íslands leyfir ekki að leggja hömlur á atvinnufrelsi manna, nema því aðeins að það þjóni almannaheill lands og þjóðar. Stöðvun hvalveiða við ísland gengur þvert á almannaheill íslendinga, sem byggist á að viðhalda jafnvægi í lífriki sjávar. Náttúruverndarsamtökum verður að skiljast að íslendingar eru þolendur þess að aðrar þjóðir hafa mengað sín hafsvæði og að kröfurmeng- unarríkjanna um útsýnissjávardýragarð á ís- landsmiðum er áróður til þess að beina athygli eigin þjóðfélagsþegna frá ruslahaugastefnu þeirri sem iðnríkin hafa rekið á hafsvæðum heimsins undanfarna áratugi. Ég óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með sjómannadaginn. Guðjón A. Kristjánsson forseti FFSÍ VÍKINGUR 5
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.