Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Qupperneq 31
ráðamönnum urðu menn varir
við mikinn skilning og því er
bjartsýni ríkjandi um að gera
megi skólann betri og þá námið
um leið, sem á að skila sér til
þeirra sem Ijúka þar námi,
bæði hvar varðar starf þeirra
og ekki síður möguleika á góðri
atvinnu þegar sjómennskunni
er lokið.
Endurmenntun
í skýrslu nefndarinnar um
endurmenntun segir að hags-
munaaðilar í skipaútgerð, bæði
á vettvangi fiskveiða og flutn-
inga á sjó, það er Landssam-
band íslenskra útvegsmanna,
Samband íslenskra kaupskipa-
útgerða og Farmanna- og fiski-
mannasamband íslands, hafi
ítrekað mikilvægi endurmennt-
unar við yfirvöld menntamála
og reynt að tryggja endur-
menntun í fagskólum sjó-
manna.
Endurmenntun er mikilvæg
vegna þess að skip, búnaður
þeirra og rekstur taka svo örum
breytingum. Þekking skip-
stjórnarmanna á tækni- og
rekstrarlegum nýjungum getur
skipt sköpum um öryggi skipa
og áhafna.
Það var skólanefnd Stýri-
mannaskólans í Reykjavík sem
vann þessar breytingatillögur í
samráði við Guðjón Ármann
Eyjólfsson skólameistara. í
nefndinni eru Magnús Jóhann-
esson, Einar Hermannsson,
Gísli Jón Hermannsson, Guð-
jón Arnar Kristjánsson, Guð-
laugur Gíslason, Alexander
Hafþórsson og Einar Vignir
Sigurðsson. Ritari nefndarinn-
ar er Hrafnkell Guðjónsson
kennari. Sérstök undirnefnd
vann mikið fyrir aðalnefndina. í
þeirri nefnd störfuöu Vilmundur
Víðir Sigurðsson, kennari við
Stýrimannaskólann, Helgi Kri-
stjánsson, útgerðarstjóri Sjóla-
stöðvarinnar, Guðmundur
Baldur Sigurgeirsson, starfs-
maður hjá Nesskip og Stefán
Ólafur Jónsson, deildarstjóri í
menntamálaráðuneytinu.
Magnús Jóhannesson sagði
að víðtæk samstaða hefði verið
með nefndinni og skólameist-
ara og breytingarnar verið
samþykktar samhljóða.
Sigurjón May.nús Egilsson
fréttamaður
Siglingamálastjóri
segir að Stýri-
mannaskólinn hafi
lengi verið verr
búinn en aðrir
framhaldsskólar.
Utgerðarmenn!
Fóðrum kraftblakkir og þríplexkefli
fýrir loðnu- og sfldarbáta.
Fóðrum einnig kefli í netaspil.
Gúmmísteypa t>. Lárusson
HAMARSHÖFÐA 9,112 REYKJAVÍK, SÍMl 674467