Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Síða 36
MARKAÐSFRÉTTIR
KARFI í Þýskalandi er fastan liðin hjá og menn farnir að úða í sig
pylsum og annarri óhollustu. Áhuginn og þar með verðið á ís-
lenskum karfa fór þvílækkandi í aprílmánuði. Framboðið á ís-
lenskum karfa í þýskum höfnum dróst saman úr 3.136 tonnum í
mars í 2.492 tonn í apríl. Verðið var óvenjuhátt í mars, 2,93 mörk
eða 105,19 kr. kílóið, en í apríl snarlækkaði það. Að meðaltali
fengust 2,49 mörk fyrir kílóið af karfa í apríl en það jafngildir 87,62
krónum. Heldur dró úr framboðinu af karfa á íslensku mörkuðun-
um. Alls var landað 729 tonnum af karfa í apríl á móti 1.050
tonnum í mars. Meðalverðið sem fékkst fyrir karfakílóið var 38,56
krónur í apríl, hafði hækkað úr 37,85 krónum.
UFSI Framboðið á ufsa í Þýskalandi jókst hins vegar töluvert og
merkilegt nokk hækkaði verðið. Sáralitlu var landað af ufsa í
þýskum höfnum fyrstu þrjá mánuði ársins en í apríl kom nokkur
fjörkippur í ufsalandanir. Alls var þá landað 425 tonnum af ufsa og
fengust að meðaltali 2,97 mörk fyrir kílóið sem jafngildir 104,41
krónum. Þetta er töluvert hærra en í mars, en þá fengust 2,58
mörk, eða 92,46 krónur, fyrir kílóið að meðaltali. Á íslensku mörk-
uðunum datt framboðið niður í apríl en verðið snarhækkaði. Þá
var landað 797 tonnum af ufsa og fengust 47,85 krónur fyrir kílóið
að meðaltali. í mars var landað 2.073 tonnum og meðalverðið var
rétt undir 40 krónum.
SKIPA- OG BÁTAVÉLAR
9-1100 hestðfl
YANMAR vélarnar eru ein-
staklega léttar og fyrir-
ferðarlitlar og þekktar fyrir
vandaða hönnun og mikla
endingu.
Eigum á lager og væntan-
legar:
Gerð 4LH: 110,140 og
170 hö.
Gerð4JH:41,52,63og74hö.
Hagstættverð.
Sala - Ráðgjöf - Þjónusta
AUGLYSINGAIVIERKING/
AUGLÝSINGAMERKIIMGAR
AUGLYSINGAMERKINGAR
AUGLÝSIIMGAMERKIIUGAR
AUGLÝSIIMGAMERKIIMGAR
. . . þar sem BATARIMIR eru merktir
LANDUST skiltagerð, Ármúla 7, bakhús, sími 91-678077, fax 91-678516