Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Side 59
siglingu í dimmri þoku og skip-
stjórnarmenn annars gáfu
ranglega hljóðmerki, sem ekki
voru í samræmi viö stjórntök
þeirra. Afleiðingin varð harður
árekstur, og annað skipið sökk.
Á síðari árum hefir þeim þætti
skipstjórnar, sem lýtur að vakt
á stjórnpalli, verið veitt vaxandi
athygli. f athugunum á slysum
og óhöppum hefir berlega
komið í Ijós að megin orsök
óhappa er slælega staðin vakt
ásiglingu, þarmeðtalið aðekki
er haldinn dyggilegur útvörður.
Nú skyldi leikmaður ætla að
með nýtísku siglingatækjum,
góðum og fullkomnum ratsjám
og staðsetningartækjum mætti
næstum því útiloka árekstra á
sjó, svo og skipsströnd.
Reynslan sýnir annað. Mann-
leg mistök eru talin eiga 85 af
hundraði saka á óhöppum. f
þessum flokki eru m.a. eftir-
taldir þættir: Undir áhrifum
áfengis, sofnað á vaktinni, ann-
ars hugar eða athugunarleysi.
f vaktareglum sem sam-
þykktar voru af Alþjóða sigl-
ingamálastofnuninni (IMO)
1978 er kveðið á um ábyrgð
skipstjóra á því að vaktir á
stjórnpalli séu settar. Þá hefir
ráðið hvatt ríkisstjórnir aðildar-
ríkja til þess að vekja athygli
skipaeigenda og skipstjórnar-
manna á mikilvægi þess að
vaktir á stjórnpalli séu gengnar
í samræmi við settar reglur og
með því komið í veg fyrir óhöpp
og slys.
Sá slysavaldur á sjó sem
flestum er ofarlega í huga er
sjálft veðrið. Lendi skip í fárviðri
við verstu aðstæður verður oft-
lega fátt til hjálpar. Nægir þar
að minna á ofsaveður sem
gekk yfir Vestfirði í janúar og
byrjunfebrúar1968, þegarskip
fórust. Þar af hvolfdi tveim
breskum togurum sem lágu í
landvari á ísafjarðardjúpi. Enn
er mönnum í fersku minni Hala-
veðrið í febrúar 1925 þegar
tveir togarar fórust á rúmsjó.
Skyldur
En snúum okkur að því hvað
skipstjóri á að gera annað, t.d.
á farþegaskipi, en að snæða
með farþegum, segja þeim
skemmtilegar sögur og ganga í
augun á fínum frúm meðal
þeirra á 1. farrými.
Flestum ber saman um að
hvergi séu til tæmandi ákvæði
eða reglur um starf skipstjóra. í
ýmsum lagabálkum og reglu-
gerðum um sjómennsku eru
skipstjórum lagðar á herðar
vissar skyldur. Til dæmis er
skipstjóri ábyrgur fyrir því að
skip sem leggur úr höfn sé haf-
fært við upphaf ferðar og að
skipinu sé haldið haffæru til
ákvörðunarhafnar. Hann á að
sjá um að skipinu sé stjórnað af
viti og að fulls öryggis sé gætt.
Þeim er þetta ritar er í fersku
minni er millilandaskip lét úr
höfn í Reykjavík eitt sinn og 1.
stýrimaður var í sinni fyrstu ferð
sem skipstjóri. Þegar hafn-
VÍKINGUR 59