Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Síða 72
Á STRÖNDINNI
Á ferð um Snæfellsnesið, í
nánd hins rómaða jökuls, er
staldrað við í verstöðvunum.
Úti fyrir ströndinni hafa
lengi verið gjöful fiskimið og
héðan hefur mikill auður
verið sóttur í hafið fyrir þjóð-
arbúið.
í dag, laugardag í ágúst, er
rólegt í slippnura, en á garð-
inum útí Súgandisey eru bíl-
ar í þéttri röð. Það er beðið
eftir ferjunni yfir Breiðafjörð.
Við Arnarstapa, sunnan á
nesinu, er sjórinn stilltur og
bátar í vari, en hvítmáfar
önnum kafnir við að æfa iist-
flugið.
Það þarf að vera mikil þoka
svo ekki sjáist frá Rifi, hinni
gömlu verstöð, til Ólafsvíkur
einum mesta útgerðarstað
landsins.
Haraldur
Einarsson
teiknaði myndirnar
og samdi textann
Á Þórsnesi yst er Stykkis-
hólmur, einn elsti verslunar-
staður landsins, vinna tengd
sjónum hefur alltaf verið þýð-
ingarmikil fyrir staðinn, en
margt hefur breyst. Skelfisk-
urinn er eftirsóttur og veitir
mörgum vinnu.
Rreyndar er stutt milli ver-
stöðvanna þriggja á nesinu
norðanverðu við Breiðafjörð,
Rifs, Ólafsvíkur og Grundar-
fiarðar (Grafarness), sem er
gömul verslunarmiðstöð.