Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Síða 89

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Síða 89
HÆTTUSLÓÐUM Jónas hóf störf á Jökulfellinu í júní í fyrrasumar en ævintýra- feröin til Persaflóa hófst í des- ember. Þá haföi skipið legiö í nokkurn tíma á Austfjörðum og ekkert var vitað hvert þaö átti að fara. En þá var Jökulfellið sent til Hollands þar sem skip- verjar fengu þær upplýsingar að það ætti að lesta smjör og fara með það til Sovétríkjanna. „En það varð ekkert úr því, heldur var okkur sagt að það ætti að halda til Þýskalands til að lesta matvæli sem áttu að fara til Sádi-Arabíu. Síðan kom náttúrlega í Ijós að það voru engin matvæli heldur sprengjur og skotvopn sem við áttum að flýtja." Sumir fóru heim — Hvenær var ykkur sagt hver hinn raunverulegi farmur átti að vera? „Þegar við vorum á leiðinni til Emden í Þýskalandi var okkur sagt að það væri kannski hættulegur farmur sem við ætt- um aö flytja. Þaö var breska varnarmálaráðuneytið sem hafði fengið Jökulfellið á leigu frá Samskipum til að flytja vopnin. Við fórum svo frá Em- den í desember og leiðin lá beint til Al Jubayl í Sádi-Ara- bíu.“ Þegar skipstjórinn tilkynnti skipsverjum hvaða farm þeir ættu að flytja sagði hann þeim jafnframt að ef þeir vildu ekki fara með yrðu þeir lausir allra mála og gætu farið frá borði og heim. Það voru fjórir sem ákváðu að gera það. Jónas segir að það hafi ekki komið til Qreina að hann færi frá boröi. „Mér fannst það spennandi aö eiga að fara að flytja vopn á Þettasvæði. Þaövoru einhverj- ■r sem voru hræddir en ég varð aldrei var við neina hræðslu hjá mér.“ Tveir skoskir hermenn voru um borð í Jökulfellinu frá því skot- vopnin voru lestuð en þegar skipið var komið á hættusvæði voru herskip sem fylgdu því. Stór sveigur var farinn þegar siglt var framhjá Lýbíu og einn- ig Suður-Jemen. Þegar komið var inn á Persaflóann var tekið beint strik á Al Jubayl sem er nokkurn veginn fyrir miðjum flóa. Jökulfellið lagðist að bryggju daginn áður en styrj- öldin braust út. Eins og að lenda í miðri bíómynd „Það var farið beint að bryggju og við stoppuðum í sól- arhring meðan losað var. Það kom urmull af breskum her- mönnum til að losa farminn. Mér fannst þetta rosalega gaman. Að lenda á þessu svæði á hættutímum var eins og að lenda í miðri bíómynd. En það fannst ekki öllum þetta skemmtilegt. Ég held að eina hættan sem við hefðum getað verið í, hafi verið að lenda á tundurduflum. Að öðru leyti var skipið svo vel varið." Skipverjarnir máttu ekki fara í land í Al Jubayl. Þeim var hald- ið í skipinu fyrir utan að þeir máttu aðeins viðra sig á bryggjusporðinum. Jónas segir að mjög mikil spenna hafi verið Á kassana eru prentuð varnaðarorð, þar sem bannað er að stafla kössunum í nánd við sprengjur, enda eru þeir fullir af hvellhettum, til að tendra sprengjurnar. En hér sést að þeir sem hlóðu skipið létu sér í léttu rúmi liggja hvort skipið kæmist heilt í höfn eða spryngi í loft upp á leiðinni, og stöfl- uðu kössunum fast upp við sprengjurnar. VÍKINGUR 89
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.