Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Síða 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Síða 7
Sjómannablaðið Víkingur fékk fyrrnefnda tvo forustumenn í viðtal, ásamt Kristni Péturssyni, sem er einn áhugamannanna um nýja sjáv- arútvegsstefnu. Stemmningin í viðtal- inu er lífleg, svolítið gamansöm á köfl- unt, en fyrst og fremst einkennist hún af geislandi áhuga viðmælendanna á umræðuefninu. Rétt er að geta jiess að þeir tala ekki í nafni félagsins í þessu viðtali, heldur eru þeir að lýsa Jreim persónulegu viðhorfum sínum sem urðu til Jress að Jreim finnst nauðsyn á að skipuleggja andstöðuna við ríkj- andi sjávarútvegsstefnu. Árið þegar menn hættu að hugsa — Hvert er markmiðið með stofnun þessa nýja félagsskapar? Árni: Eigunr við ekki bara að segja að Jrað sé að hræra upp í þessu. Nei, í alvöru talað eru markmiðin þau, eins og nafnið gefur til kynna, að vinna að því að hér verði tekin upp ný sjávar- útvegsstefna. Fyrsta markmiðið varð- ar frjálsa framsalið í núgildandi lög- um. Það er höfuðatriði fyrir okkur að afnema sölu mannréttinda, sölu at- vinnuréttinda og samþjöppun valds og peninga sent við teljum að standist engan veginn, hvorki stjórnarskrá, lög né eitt eða neitt á þessu blessaða landi. Það sýnir sig að það er að verða þvílík ólga vegna þessa að það er orðið alveg tímabært að fá einhvern farveg, Jrar sem rnenn geta safnast saman til Jress að fá þessu breytt. Kristinn: Markmið okkar er að ljúka forvinnu, ákveðinni forvinnu sem var aldrei lokið hér um árið. Eins og nú- verandi formaðurFramsóknarflokks- ins sagði í viðtali \ ið Mannlíf þá hættu menn að hugsa hér um árið og rubbuðu þessu af. — Hvaða ár var það? Hvenær var það sem menn hættu að hugsa? Kristinn: Það var árið sem þetta of- beldiskerfi var sett á í upphafi. —Áttu við kvótakerfið? Kristinn: Já, ég á við það. Svo þekki ég það sjálfur að Jtað var hætt að hugsa á Aljtingi vorið 1990 Jregar núverandi lög voru samjDykkt; þegar lá svo ntikið Nótin tekin um borð í Júpiter, eitt þeirra skipa sem Hrólfur Gunnarsson hefur stjórnað á lífsleiðinni. á að láta Halldór hafa þessi lög. Jó- hanna átti að fá húsbréf ogjúlíus stól- inn í umhverfisráðuneytinu. Það lá svo rnikið á að rubba þessu af að mál- efnaleg vinna í jressu máli var stöðvuð. Árni: Þú sasl nú á þingi þá Kristinn. Kristinn: Eg krafðist þess þá munn- lega og skriflega að það færi fram sér- stök lögfræðileg úttekt á tveimur greinum stjórnarskrárinnar sem Jaetta snertir mest, 69. greininni um at- vinnufrelsi og 67. greininni um eigna- rétt og jafnréttisreglu. En sú vinna sem þá hófst var rétt að byrja; álit kont fráLagastofnun Háskóla Islands en Jtað var ekki einu sinni lesið. Löggjaf- inn riiddi þessum lögum út úr þinginu án Jjcss að þessi grundvallaratriði væru skoðuð. Sem er auðvitað meiri háttar afglöp og Aljnngi til skammar. 7

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.