Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Qupperneq 16
V í K I N G U R
Kristinn: Það væri gott að friða ein-
hverja Jitla hrygningarfbletti, mjög
litla að mínu mati, í samráði við heima-
menn á hverjum stað á íslandi. En
þessar ógurlega stóru hugmyndir,
sem núna eru uppi um friðun á stór-
um svæðum, eru fáránlegt rugl. Það
eru engar vísindalegar kenningar eða
staðreyndir til um að það hafi tekist að
byggja upp fiskstofna nteð svo rosa-
legri friðun. Þetta er botnlaus vitleysa
og að mínu mati af sama stofni og sú
árátta Grænfriðunga að friða lival. Eg
neita að kalla þessa menn fræðimenn
þótt þeir séu eitthvað meira lesnir en
aðrir, ég vil kalla þá fiskfriðunarsinna.
Ég neita því að þeir eigi að komast upp
með að friða og friða meira og nteira,
með allt niðrum sig og ekkert hald-
reipi í kenningum eða reynslu.
Þeir verða að snúa af þeirri stefnu
að hræða sjómenn og heilaþvo þjóðina
með því að sjómenn séu sökudólgar í
ofveiði, þegar gögnin þeirra segja
annað og þegar engar vísindalegar
niðurstöður eru til um að þetta sé rétt.
Þetta er allt saman á íslensku sjó-
mannamáli haugalygi.
Svo þykjast þessir
sérfræðingar hafa reiknað
út að sóknin í smáþorsk sé
meiri nú en hún var þá.
Hrólfur; Já, ég er nú ekki endilega
sammála því að það þurfi að vera með
einhverja sérstaka fiskfriðun. Eg hef
nú mínar ákveðnu skoðanir á þeim
málum. En ég vil láta fara fram mjög
gagngerar rannsóknir á því hvaða
veiðarfæri fara verst með lífríkið eða
botninn. Þetta er hægt að skoða allt
saman með myndavélum. Það hefur
ekki nein viðhlítandi tannsókn farið
fram á því, en samt er verið að banna
hin og þessi veiðarfæri, kannski ein-
faldlega vegna þess að þau skila of
miklum afla. Þetta er mesta heimska.
Það eru oft arðbærustu veiðarfærin
sem hafa verið bönnuð, en það veit
enginn hvað þau hafa eyðilagt. Það
þarf aðfara fram víðtæk rannsókn á
þessu atriði, áður en farið er að tala
um verndun hrygningarstöðva.
Helber della
— Það er gjarnan fullyrt að sóknin sé
of mikil. Getið þið frætt okkur hina,
sem ekki kunnum á því skil; hvað er
sókn og hvernig er hún mæld?
Hrólfur: Eg veit nú ekki hvernig sókn-
in er mæld, en ég held að hún sé reikn-
uð út frá afla á togtíma. En hvað veiði-
þolið áhrærir, þá má kannski segja að
ef öllum íslenska flotanum er ein-
göngu beitt í þorsk og öllu öðru hent
fyrir borð, þá getur verið að hægt sé að
ganga svo nærri stofninum að hann
minnki eitthvað. En það er aldrei hægt
að minnka hann svo mikið að hann
rétti ekki við aftur.
— Ein fullyrðing sem oft heyrist er
sú að við eigum svo stóran og vel
búinn fiskiskipaflota að ef við slepp-
um honum lausum á fiskveiðilögsög-
una okkar þá hreinsi hann upp allt líf
á skömmum tíma. Kannski vikum,
kannski mánuðum. Hvað hafið þið
um þetta að segja?
FISKUPPBOD
Virka daga kl. 07:30. Höfum bæði kör og kassa.
Veitum allar upplýsingar um þjónustu viö báta.
Sendum viðskiptavinum okkar bestu kveðju á sjómanndaginn.
Þökkum viðskiptin.
Hafnarskeið 6, 815 Þorlákshöfn, © og símsvari á kvöldin 98-33402, Fax 98-33408