Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Qupperneq 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Qupperneq 17
ÉGÆTLA EKKI AÐ NEGLA Hrólfur: Ég segi að þetta sé bara hel- ber della. Ég vil nú bara segja það að við ættum að skoða söguna aftur fyrir útfærslu landhelginnar í 50 mílur. Ég var einn af þeini tvöhundruðmenn- ingum sem skrifuðu undir það plagg. Ég leit þá fram á bjarta framtíð, að við fengjum að veiða hér í friði á næstu áratugum ogjafnvel öldum. En hvað gerðist? Þegar búið var að losa okkur við þúsundir fiskimanna af miðunum, þá fyrst kom til þess að við þyrftum að fara að vernda og friða. Það var ein- kennilegt að ekki skyldi þurfa að gera það áður. — Þú átt við útlendingana? Hrólfur: Útlendingana já, það var enginn sntáræðis floti. Útlendingarnir sem alltaf sóttu í smáfiskinn. Aldrei annað en smáfisk. — Eru einhversstaðar til tölur um hve mörg fiskiskip og hve margir fiskimenn voru þá hreinsuð af mið- unum? Hrólfur: Eg ætla að leyfa mér aðsegja að þeir hljóti að hafa verið feikilega margir. Á fímmtándu öld var nánast stríð á milli Þjóðverja og Englendinga um hvorir þeirra ættu að fá að nýta þessi mið. Þá hljóta að hafa verið margir fiskimenn að veiðum, úr því að þeir töldu að miðin mundu ekki duga nema fyrir aðra þjóðina. — En bara síðustu árin, frá seinna stríði og fram að friðun. Vitið þið um stærð þess flota útlendinga sem þá sótti á íslensk mið? Hrólfur: Nei, ég er ekki með það handbært, en ég veit að það var alveg geysilegur fjöldi hérna. Um möskva, útlendinga og hávaða Árni: Kristinn, þú hefur bent á möskvastærð og annað sem þú segir að spili inní. Kristinn: Möskvinn í dag er með 200 prósent stærra flatarmál heldur en möskvinn var hjá þessum mönnum. Þessir menn voru miklu nær landi. Þetta voru mörg hundruð erlendir togarar með möskva í botnvörpu semvar einn þriðji af möskvanum í dag. Þeir voru hér á uppeldisslóðun- um eins og sumir fræðimenn hafa kallað slóðina fyrir Norður- og Aust- urlandi. Svo þykjast þessir sérfræð- ingar hafa reiknað út að sóknin í smá- þorsk sé meiri nú en hún var þá. Ég horfði á það 1975, um haustið, þegar síðustu Bretarnir voru reknir út, ég horfði á okkur losna við þá af miðunum. Ég hélt að nú væri röðin komin að okkur og ég segi eins og Hrólfur: Loksins losnuðum við við þá og nú gat maður búið hér í friði og fengið nógan fisk. Örfáum árum seinna byrjaði of- beldið og í dag má ég ekki fara á sjó og börnin mín mega heldur ekki fara á sjó. Hvar erum við eiginlega staddir í ruglinu? Þetta voru ntörg hundruð er- lendir togarar. Ég vil líka minna á að engar rann- sóknir hafa verið gerðar á því hvaða áhrif þessi hrikalegi hávaði, sem er frá veiðiskipum nútímans, hefur á veið- ina. Ég vil að menn fari að hugsa um það að það heyrðist voðalega lítiðí göntlu gufutogurunum. Hvalbátarnir eru reknir með gufuvélum \’egna þess að það heyrist lítið í þeim. Þessir Réttumegin við strikið með Reglubundnum sparnaði 1*/ Hegluljundinn /• spamaður Reglubundinn sparnaöur - RS - er einfalt og sveigjan- legtsparnaðarkerfisem hentar öllum þeim sem hafa áhuga á að vera réttu megin við strikið i fjármálum. Ávinningurinn er margfaldur: Þú eignast sparifé og ávaxtar það með öruggum og arðbærum hætti, átt greiðari aðgang aó lánsfé, kemst í hóp bestu viðskiptavina bankans og nærð betri tökum á fjármálum þínum en nokkru sinni fyrr. Allt sem til þarf er að semja við bankann um að millifæra ákveðna upphæð reglulega inn á Grunn, Landsbók, Kjörbók eða Spariveltu sem saman mynda RS. Við inngöngu í RS færðu þægilega fjárhagsáætlunar- möppu fyrir heimilið ogfjölskylduna. L Landsbanki íslands Bankl allra landsmanna Allar nánari upplýsingar fást í ítarlegum bæklingi sem liggur frammi í næstu afgreidslu Landsbankans
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.