Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Page 20
V I K I N G U R
Sendum öllum viðskiptavinum
okkar kveðjur á sjómannadaginn.
Skipasala
Hraunshamars
Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði. Sími 54511
co 0\ O
'SLANÖS
STDFNAÐ
1919
Viö minnum félagsmenn okkar á ORLOFSHÚSIN í LAUGARDAL.
Upplýsingar á skrifstofu félagsins, Borgartúni 18, 105 Reykjavík. Sfmi 91-629095
Stýrimannafélag Islands
sendir sjófarendum
bestu kvedjur á
sjómannadaginn.
þyrfti að búa til þessar leikreglur. En
leikreglurnar hafa komið fram og þær
eru aðalorsökin fyrir þessari mestu
eignatilfærslu Islandssögunnar. Peim
verður að breyta, alveg burtséð frá því
hvað kemur út úr Hafrannsóknar-
dæminu.
Davíð Oddsson hefur sagt að til þess
að núverandi kvótakerfí gangi upp
verði annað hvort að breyta lögunum
eða breyta stjórnarskránni, því þetta
tvennt geti ekki farið saman eins og
það er uppbyggt núna. Þetta finnst
mér gott dæmi um það hverskonar
vandamáli við stöndum frammi fyrir,
að það verði að breyta grunvallaratrið-
inu í leikreglunum, því sem birtist dag-
lega undir nafninu kvótabrask.
Óveiddur fiskur í sjónum, sameign
þjóðarinnar, getur aldrei og má aldrei
verða til einkaráðstöfunar tiltekinna
manna í þessu landi, því að þá erum
við komnir inn á svo hættulega braut
að hann gæti t.d. lent í höndum út-
lendinga í gegnum peningavald og
annað slíkt. En kvótabraskið er svo
mikið að það erorðið að grundvallara-
triði í öllu samfélaginu og það skal
burt.
Skaparinn eða Hafró
Kristinn: Víkingarnir ílúðu hérna
forðum frá Noregi undan ofstjórn og
sigldu til Islands í leit að meira frelsi.
Við flýjum hvorki eitt né neitt. Ég segi
fyrir mig að ég ætla að taka þátt í vinnu
við að knýja fram endurmat á þessu
máli í heild sinni, því það hefur engan
málefnagrundvöll og það stenst ekki
stjórnarfarslega. Það er brotlegt gagn-
vart grundvallarmannréttindum
stjórnarskrár íslenska lýðveldisins og
því skal verða breytt.
— Hrólfur, ætli þú eigir þá ekki loka-
orðin?
Skipstjórafélag íslands
sendir sjómönnum um
land allt kveðjur á
sjómanndaginn
Hrólfur: Ég er nú búinn að vera þol-
andi þessa kvótakerfi síðan 1976 að
það var fyrst sett á síldveiðar. Fyrst var
byrjað að úthluta síld jafnt á milli
skipa, síðan var byrjað að úthluta
loðnu eftir skipastærð, þá var farið að
úthluta þorski miðað við einhverja
reynslu og síðan var þessum þorski
breytt í einhverjar fleiri tegundir með
einhverju þorskígildi. Allt hefur þetta
verið eintóm endaleysa frá upphafi.
Þetta læknisráð allt er fundið upp
hjá Hafrannsóknastofnun og mér
finnst þeir ætla að ganga nokkuð
langt, vísindamennirnir á íslandi, ef
þeir telja sig vita meira en skaparinn
þegar hann skóp himin og jörð. ♦
20