Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Page 48
V í K I N G U R
um og fjórar skyttur úr breska hernum.
AIls voru því 48 manns um borð.
Þýskar flugvélar nálgast
Hjálmar Viljálmsson, sýslumaður og
bæjarfógeti á Seyðisfirði, kom á skrifstofu
sína á venjulegum tírna þennan dag. Rétt
fyrir kl. 11:00 hringdi síminn. Það var
símstöðin í Stakkahlíð í Loðmundarfirði.
Hjálmari var tilkynnt að Seyðfirðingar
væru að fá heimsókn. „Það eru þijár flug-
vélar á leiðinni til ykkar,“ sagði símavörð-
ur. Þótt stuttur tínii væri til stefnu tókst að
láta yfirmenn hersins vita og sömuleiðis
barnaskólann. Þar varð uppi fótur og fit.
Öllum börnunum var skipað niður í kjall-
ara skólans. Allir tóku til fótanna en þrír
Þrjár sprengjanna
höfðu fallið í 8-10
metra fjarlægð frá
framskipinu
bakborðsmegin, ein í
svipaðri f jarlægð
stjórnborðsmegin en
sú fimmta nokkru fjær
og nær landi.
drengir hlupu út. Kennari fór á eftir
þeim, náði tveim en sá sem var fljótastur
að hlaupa komst undan og alla leið niður
að brú.
Það var Hjálmar Níelsson. Hann sagði
svo frá:
„Þegar ég kom niður á veginn og að
brúnni yfir Fjarðará mætti ég manni með
myndavél og þrífót. Eg bauðst til að
hjálpa honum að bera þetta, hann sagðisl
æda niður í fjöru. Nú sáum við flugvél-
arnar þrjár í mikilli hæð. Þær komu úr
austnorðaustri og stefndu á höfnina. Það
nam engum togum að í þessum svifum
hófst skothríð á þær frá olíuskipinu og
byssustæðum á landi. Ég sá þegar
sprengjurnar féllu. Þær voru fimm, eng-
in þeirra hitti olíuskipið E1 Grillo en fjórar
fóru ntjög nálægt því. Mér fannst þetta
eins og í bíó. Gerði mér enga grein fyrir
alvörunni, að þarna varð ég sjónarvottur
48