Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Blaðsíða 51
E L G R I L L 0
Yfirvöldum var tilkynnt um
rekann, en þau skilaboð
bárust frá hernum að það
sem lent hefði í sjó hirtu
þeir ekki um og mættu
björgunarmenn halda sínu
góssi.
Herskálahverfi á Þórisstaðamelum.
úr skipinu, eða um það bil helmingi þess
sem í því var er það sökk.
í júní árið 1972 fóru þrír froskkafarar,
þeir Jóhannes Briem, Halldór Dagsson
og Óli Rafn Sumarliðason tíl Seyðisfjarð-
ar að frumkvæði Ólafs Ólafssonar út-
gerðarmanns og fleiri. Þremenningarnir
köfuðu nokkrum sinnum niður að E1
Grillo og könnuðu ástand skipsins, sem
þá hafði legið á botninum í 28 ár. í dag-
bók þeirra félaga er allítarleg lýsing á
skipinu ofan þilfars og að nokkru á sjálf-
um skipsskrokknum, sem þeir töldu
nokkuð traustan. Þeir geta þess einnig í
dagbók að hafa rætt við Hafstein Jó-
hannsson kafara, sem hafði nokkrum
sinnum kafað niður að skipinu sér til
ánægju.
Síðustu kafanir sem mér er kunnugt
um voru í maí-júní sumarið 1991 í sam-
bandi við gerð sjónvarpsþáttanna Gull í
greipar Ægis, sem Sjónvarpið lét gera
undir stjórn Björns Emilssonar. I sam-
bandi við sjónvarpsþáttinn köfuðu Jteir
Vilhjálmur Hallgrímsson og Pálmi
Dungal niður að E1 Grillo.
En stafar enn mengunarhættu frá
þessu sokkna skipi? I samtali við undirrit-
aðan sagði Jóhann B. Sveinbjörnsson,
bæjargjaldkeri á Seyðisfirði: „Ég tel mjög
trúlegt að enn sé sprengiefni í skipinu.
Þessi skip voru svo vel vopnuð að ótrúlegt
er að öllu slíku hafi verið náð upp. Um
olíuna sem eftir er heýrir maður frá sér-
fróðum mönnum að hún sé líklega
hlaupin í stump. Þess vegna vonum við
að mengunarhætta sé liðin hjá.“
♦
Helstu heimildin
Samtöl við Jóhann B. Sveinbjömsson og
Hjálmar Níelsson, Seyðisfirði, Áma Vilhjálms-
son, Garðabæ og Jart Sigurðsson, Kópavogi.
Jarl var skipsmaður á olíuflutningaskipinu S.S.
Culpepper og einn þeirra sem stjómuðu stóm
fallbyssunni á skipinu.
Helstu rit sem stuðst var við:
Skýrsla skipstjóra El Grillo til bresku flota-
stjómarinnar, Seyðfirskir hemámsþættír eftir
Hjálmar Vilhjálmsson, Virkið i norðri 3. bindi
eftir Gunnar. M. Magnúss og dagbók kafaranna
Óla Rafns Sumariiðasonar og Jóhannesar
Briem. Enfremur óprentaður kafli um El Grillo
eftir Einar Vilhjálmsson.
Teikningin sýnir hvernig El Grillo liggur á
fjarðarbotninum og eru hlutföllin milli
stærðar skipsins og dýpisins nákvæm-
lega rétt.Teikningin er úr bókinni Seyðfir-
skir hernámsþættir.
51