Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Side 55
ÞORSKUR Framboðið á þorski dróst aftur saman í aprfl
eftir nokkra uppsveiflu í marsmánuði. Samt er þaðekki
nenta svipur ltjá sjón miðað við það sem var og hét. N ú voru
boðin til sölu 1.153 tonn af þorski á Humbersvæðinu á móti
1.411 tonnum í rnars. Þessi 1.153 tonn seldust að meðaltali
fyrir 1,42 sterlingspuncl kílóið, en það jafngildir 147,18 kr.
Verðið hækkaði heldur milli mánaða því það var 1,35 pund
í mars. Á íslensku mörkuðunum dróst framboðið einnig
saman þótt vertíðin væri í hámarki og gæftir ágætar. í mars
voru seld 6.767 tonn á mörkuðunum en í apríl datt fram-
boðið niður í 4.256 tonn. Gætu kvótakaupin sem nefnd eru
hér að framan átt sinn þátt í þessu? Eða er það kannski
verðið sem hefur verið lágt að undanförnu, það var rúmar
84 kr. í mars en fór niður í 79,82 kr. fyrir kflóið að meðaltali
í aprfl. Aflatregðan sent ríkt hefur í vetur er þó hvergi meiri
en þegar grálúðan á í hlut enda voru einungis 128 tonn af
lienni falboðin á mörkuðunum níu.
ÝSA Ýsuframboðið stórjókst hins vegar í aprfl og gildir það
jafnt um íslenskumarkaðina sem ensku hafnirnar. f Eng-
landi voru seld 918 tonn af ísaðri ýsu og hafði aukist úr
rúmlega 600 tonnum í mars. Verðið hafði hins vegar lækk-
að úr 1,71 sterlingspundi í 1,57 pund en það jafngildir
162,72 kr. að meðaltali fyrir kflóið af ýsu. Sömu sögu er að
segja af íslensku mörkuðunum, þar jókst framboðið en
verðið lækkaði. Alls voru seld 1.205 tonn af ýsu á mörkuð-
unum í aprfl en í mars var frantboðið 911 tonn. Verðið
lækkaði heldur, eða úr 116,54 kr. í 107,29 kr. að meðaltali
fyrir kílóið.
KARFI Langt er síðan framboðið af karfa hefur verið
jafnmikið í þýskum höfnum og nú í aprílmánuði og skýrist
það eflaust af föstunni sem náði hámarki um miðjan mán-
uðinn. Alls voru 3.239 tonn af karfa boðin til sölu í Bremer-
haven og Cuxhaven í apríl á móti 2.762 tonnum í mars.
Verðið hefur hins vegar oft verið hærra. Nú fengust að
meðaltali 2,53 ntörk fyrir kílóið eða 90,98 kr. en í mars var
verðið 2,74 mörk sem jafngildir 98,23kr. Á íslensku mörk-
uðununi dróst framboðið sarnan frá því í mars, en í aprfl
voru 326 tonn á markaði hér á landi, borið saman við 422
tonn í ntars. Og þrátt fyrir minnkandi frantboð lækkaði
verðið úr 39,56 kr. fyrir kflóið í 37,74 kr.
UFSI Ufsaframboðið var ívið minna í þýskum höfnum í
aprflmánuði en í mars. Nú voru boðin til sölu 312 tonn af
ufsa í Þýskalandi á ntóti 329 tonnum í mars. Verðið var að
beita má það sama og í mars því í apríl fengust 2,29 tnörk
fyrir kílóið að nteðaltali, eða 82,13 kr., en í rnars var meðal-
verðið á ufsakílóinu 2,28 rtiörk. Á íslensku mörkuðunum
snarminnkaði framboðið á ufsa í mánuðinum og verðið
lækkaði líka. Alls voru seld 729 tonn af ufsa á markaði hér á
landi í apríl á ntóti 1.297 tonnum í mars. Nú var verðið
40,39 kr. fyrir kflóið að meðaltali en var 43,26 kr. í mars.
VIÐTALIÐ
— segir Þorsteinn Árnason, framkvæmda-
stjóri Fiskmarkaðs Vestmannaeyja
ERUM KOMNIR TIL AÐ VERA
Fiskmörkuðunum hefur farið fjölg-
andi hér á landi og nú telst okkur til að
þeir séu orðnir níu talsins í öllum
landshlutum nerna á Austurlandi.
Talsverð breyting hefur orðið á styrk-
leikahlutföllum markaðanna innbyrð-
is. „Gömlu“ markaðirnir þrír, þe. Fisk-
markaður Suðurnesja, Faxamarkaður
og Fiskmarkaður Hafnarfjarðar, eru
ekki lengur einráðir og ef marka má
söluna í aprflmánuði er það Suður-
nesjamarkaðurinn sem hefur lang-
sterkustu stöðuna. Þar voru seld ríf-
lega 2.800 tonn í aprfl. Næstur kom
markaðurinn í Þorlákshöfn sem losaði
þúsund tonn og Faxamarkaður sent
náði rétt tæplega þúsund tonnum.
Það er athyglisvert að markaðirnir
fyrir sunnan og vestan plurna sig ágæt-
lega meðan Dalvíkurmarkaðurinn fær
minnst af fiski til sölu og austan Vest-
mannaeyja er enginn markaður. Samt
setn áður eiga Norðlendingar og Aust-
firðingar stóran hlut í heildaraflan-
unt. En þar eru llest stærri fyrirtækj-
anna bæði í veiðum og vinnsltt og hafa
því ekki séð sér hag í að skipta við
markaðina.
Nýjasti fiskmarkaðurinn er Vest-
mannaeyjamarkaðurinn sem tók til
starfa í lok janúarmánaðar. Þar er
framkvæmdastjóri Þorsteinn Árnason
og sagði hann í spjalli við Víking að
þeir væru búnir að selja um 2.300 tonn
55