Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Blaðsíða 75
eða noiuð. Pað er ef til vill ekki að furða þótt menn séu
spenntir fyrir frystiskipum. Sem dæmi má nefna að Hólma-
drangur kom fyrir skömmu að landi með 130 lestir af
úthafsrækju, aflaverðmætið 40 milljónir og hásetahlutur-
inn 700 þúsund. Túrinn tók 24 daga.
í IjÓS hefur komið að búrfiskurinn er um þessar mundir
verðmesti fiskurinn sem við flytjum út. Það er hreint ævin-
týralegt verð sem fæst fyrir hann í Frakklandi og í Banda-
ríkjunum. En Hafrannsóknastofnum hefur ekkert sinnt
rannsóknum á þessari fisktegund og þvf eiga menn í erfið-
leikum með ýmislegt sem honum og veiðum hans viðkem-
ur. Þegar óskað var eftir því fyrr í vetur að Hafrannsókna-
stofnun tæki upp rannsóknir á tegundinni var svarið að
ekki væru til peningar og enga peninga að fá hjá sjávarút-
vegsráðuneytinu. Þetta heitir að hafna því að kaupa hundr-
aðkall á fimmtíukall.
Aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna var
haldinn á dögunum. Þar var greint frá samdrætti og heldur
dapri útkomu á síðasta ári. Þegar aðalfundar fulltrúahóp-
urinn var skoðaður sýndist manni að 9 af hverjum 10 hefðu
líka verið fulltrúar á aðalfundi Landssambands íslenskra
útvegsmanna og Sölusamtaka íslenskra fiskframleiðenda.
Og þegar hópurinn var skoðaður vel minnti hann mánn á
árshátíð á DAS þar sem nokkrir miðaldra synir hefðu heim-
sótt feður sína.
Heyrst hefur að fjármálaráðuneytið hafí hug á að láta
endurskoðalögin um skattaafslátt sjómanna sem samþykkt
voru á haustþingi. Sannleikurinn mun vera sá að sjómenn
koma mun betur útúr kerfinu en nokkurn óraði fyrir.
Astæðan mun vera skekkja í útreikningum fjármálaráðu-
neytisins og mun þar á bæ vera áhugi á að leiðrétta þetta,
enda skilar skattkerfisbreytingin engu til ráðuneytisins en
átti að skila á annað hundrað milljónum króna.
Ákveðið hefur verið að Hafrannsóknastofnun fái á
næsta kvótaári rúmar 500 milljónir króna sem fást fyrir þau
12 þúsund lesta þorskígildi sem sjávarútvegsráðuneytið
hefur yfir að ráða ár hvert. Útgerðarmenn voru afar
óhressir með þessa ákvörðun og vildu áfram fá þessum 12
þúsund lestum af kvóta úthlutað endurgjaldslaust. Uppi
eru raddir innan LÍÚ um að bindast samtökum um að
kaupa ekki þennan kvóta af sjávarútvegsráðuneytinu á
næsta kvótaári og þvinga þannig ráðuneytið til að úthluta
honum ókeypis eins og hingað til. Hafrannsóknastofnun
ætlar að hefja hinar dýru fjölstofna rannsóknir þegar hún
fær þetta fé í hendur, ef hún þá fær það.
Annars er heldur hljótt um Hafrannsóknastofnun um
þessarmundir. Menn þar á bæ vilja sem minnst láta fyrir sér
fara eftir hin herfilegu mistök við ákvörðun loðnustofn-
stærðar í haust er leið. Þótt undarlegt megi virðast eru það
eiginlega bara skipstjórar loðnuskipa sem hafa látið í sér
heyra vegna mistakanna. Þögn sjávarútvegsráðuneytisins
vegna málsins er orðin býsna hávær.
Rafmótorar frá ABB Motors
snúast o<> snúast.
Áratuga reynsla ABB (Asea) rafmótora
hérlendis er vafalaust bestu meömælin
meö rafmótorunum frá Johan Rönning.
Rönning tryggir þjónustuna.
Tvö nöfn sem standa fyrir sínu.
Við eigum ávallt á lager
mótora frá 0,25 kW - 37 kW.
Viö veitum tæknilega þjónustu og aöstoö
viö val á réttum mótor, ræsibúnaði og
hraðastýringu.
Veldu ABB
Jtf
JOHAN
RÖNNING HF
Sundaborg 15 ■ 104 Reykjavík ■ Simi (91)-814000 ■ Fax 91-688221
75