Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Side 18
Gámur í heimsreisu
Þann 24. október s.l. var í
Seattle lestaður um borð í
bandaríska gámaskipið Pres-
ident Truman, 40 feta gámur.
Ekki þykir merkilegt þegar
gámar eru lestaðir um borð í
gámaskip, en þessi gámur var
dálítið sérstakur því hann er
sameiginlegt
verkefni útgerð-
ar skiþsins og
nokkurra skóla í
Seattle til að
fræða nemend-
ur skólanna um
alþjóðaflutninga
og samskipti
ásamt alþjóð-
legum efnahag.
Gámurinn er
kyrfilega
skreyttur og eru
á honum 70
myndir sem
nemendur skól-
anna máluðu á
hann. Hefur
gámurinn verið
nefndur
Boomerang
Box. Nú verður
hægt að fylgjast
með ferðum
þessa gáms á Internetinu og
þar verða upplýsingar um
staðsetningu gámsins, inni-
hald, hver er með gáminn og
þær hafnir sem hann mun hafa
viðkomu í. Þegar gámurinn hóf
ferð sína voru 400 nemendur á
bryggjunni að fylgjast með
lestun hans og nú skoða þau
netið til að vita hvar gámurinn
þeirra er. Hægt er að skoða
ferðir gámsins á eftirfarandi
staðsetningu
http://www.apl.com/boomer-
angbox. Samkvæmt upplýs-
ingunum sem þar fást er
gámurinn staðsettur í Yoko-
hama en þangað kom hann
24. nóvember. Bíður gámurinn
eftir að verða lestaður en hann
fer í skip 12. janúar og þá
heldur hann til Shanghai. Nú er
fyrir netbúana að skoða flutn-
ingakerfi gáma í heimsreisu. ■
Betra að hafa
hlutina í lagi
Það er ekki orðið auðvelt að
sigla um höfin á skipum sem
ekki uppfylla þær kröfur sem til
skipanna eru gerðar. Nærri 80
þúsund tonna stórflutninga-
skip Pythagoras of Samos,
sem skráð er á Möltu, var kyrr-
sett í Kotka í Finnlandi í lok
október s.l. Eftir fjögurra daga
kyrrsetningu og samningabras
fékk skipið að fara í kjölfestu til
Constanta í Rúmeníu en þar
átti það að fara til viðgerð. En
viti menn, skipið lét aldrei sjá
sig í Constanta. Nú hefur skip-
inu verið bannað að koma til
hafna í ríkjum Evrópubanda-
lagsins, svo og þeim ríkjum
sem eru aðilar að Hafnarríkis-
eftirlitinu (Port State Control),
þar með talið til (slands. Þann
26. nóvember s.l. hafði skipið
talstöðvarsamband við höfnina
í Barcelona og tilkynnti komu
sína til lestunar þremur tímum
seinna. Skipinu var þá tjáð að
það fengi ekki að koma til
hafnarinnar af fyrrgreindum
ástæðum og sigldi það því í
burtu. Hvert skipið fór er ekki
vitað en höfnin er vissulega
ekki í Evrópu. ■
18
Sjómannablaðið Víkingur