Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2004, Blaðsíða 26
lægð frá skipinu sem freistaði hans. Refsingin sem hann fékk frá
tollgæslunni var einfaldlega brottvisun úr landi hið snarasta þar
sem hann hafði farið upp á bryggju án tilskilinna stimpla í vega-
bréfinu sínu. Flugvél var þvi næsta farartæki hans úr landi.
Vegalengdir
Það er lengra frá A til B en áður var haldið. Nú hefur olíufélag-
ið BP hafið endurskoðun á vegalendatöflum fyrir sjófarendum
þar sem þeir hafa séð verulega þörf á að taka inn í þær þá stað-
reynd að ekki er öllum skipum fært að fara sömu leið á milli
staða. Vegalengdatöflur hafa ekki verið endurskoðaðar síðan
1976 og síðan hafa verið settar fjölda aðskildra siglingaleiða sem
sjófarendur verða að fara eftir og gerið sumar leiðir lengri en áður
var. Þá er mörgum stærri skipa ekki lengur heimilt að iara sömu
leiðir og áður vegna umhverfisslysa sem þau hugsanlega gætu or-
sakað. Það má því segja að vegalendin frá A til B er ekki jafnlöng
öllum skipategundum.
Vanræksla í starfi
Skipstjóri og þrír stýrimenn grísku ferjunnar Express Samina
hafa verið ákærðir af dómstólum í Grikklandi í kjölfar niður-
stöðu rannsóknarnefndar sjóslysa þar í landi. Þá eru einnig fimrn
aðrir ákærðir í þessu sama máli, tveir starfsmenn útgerðarinnar í
landi og tveir skipskoðunarmenn frá grísku strandgæslunni. Eru
þeir allir ákærðir fyrir vanrækslu í starfi og manndráp eftir að 81
manns fórust eftir að skipið tók niðri þegar það var að koma lil
hafnar í Paros á Grikklandi í vondu veðri fyrir þremur árum síð-
an. Skipið sem var 4600 tonn að stærð sökk í kjölfarið með fyrr-
greindu manntjóni. Ákært er sökum þess að í ljós kom að áhöfn-
in var ekki skipulögð í aðgerðum sínum né hafði hún fengið við-
eigandi þjálfun í notkun björgunarbúnað skipsins sem fyrrgreind-
ir yfirmenn báru ábyrgð á. Þá hafði áhöfnin heldur ekki tilhlýði-
lega þekkingu á þeim neyðarviðbrögðum sem hefði átt að beita í
viðkomandi atviki.
Flöskuskeytin virka
Pólski stýrimaðurinn Dariusz Sadlo og skipstjórinn hans voru á
siglingu undan Kyrrahafsströnd Mexikó þegar þeir fengu þá hug-
mynd að senda skilaboð í flöskuskeyti. Útbjuggu þeir þrjár
flöskur með persónulegum upplýsingum ásamt því að biðja við-
komandi að koma skilaboðum til þeirra ef einhverjar þeirra fynd-
ust. Tveimur árum síðar, en þá var Sadlo orðinn skipstjóri, fékk
hann bréf frá kennara á Phillippseyjum sem hafði fundið flösku-
skeytið sem þá hafði ferðast að minnsta kosti 11 sjómílna leið.
Nú bíður Sadlo eftir því að hinar tvær flöskurnar skili sér.
Verðlaunaðir sjómenn
Það voru 16,5 milljónir króna sem runnu í vasa sjómanns sem
upplýsti yfirvöld í Bandaríkjunum um að olíu hafði verið dælt í
sjóinn frá skipinu sem hann var á. Kanadíska útgerð skipsins
viðurkenndi sök sína fyrir dómstólum að hafa gefið leyfi fyrir því
að losa olíu framhjá skilvindu í einstaka tilfellum. Sektin sem út-
gerðin fékk var 33 milljónir króna og skilorð til Ijögurra ára.
Skipverjinn fékk sem sagt helming sektarinnar í eigin vasa í sam-
ræmi við verndarlög fyrir þá sem segja frá brotlegum mengunar-
atvikum. Bent hefur verið á hversu alvarlegar afleiðingar slíkar
verðlaunaveitingar geta haft á samstarfsanda um borð í skipum.
DIS - FoC
Nú hefur Alþjóðaflutningaverkamannasambandið ITF lýst
danska alþjóðasiglingafánann DIS sem þægindafána (Flag of
Convinience). Danskir útgerðarmenn eru undrandi yfir þessari
ákvörðun ITF en benda á að þrjú útgerðarsamtök og fjögur
stéttafélög hafa samþykkt nýja samninga á DIS skipin. Aðeins eitt
stéttarfélag hefur ekki gengið til samninga en það er félag undir-
manna sem hefur nú valdið því að danski alþjóðafáninn er kom-
inn i hóp þægindafána.
Atvinnutækifæri
Nú hefur lögum verið breytt í Þýskalandi sem heimilar þar-
lenduin útgerðarmönnum að ráða fleiri erlenda yfirmenn á skip
sín en heimilt hefur verið til þessa. Ákvæði er í lögunum um að
til loka næsta árs þurfi aðeins skipstjóri á skipi undir þýskum
fána að vera þýskur ríkisborgari. Eftir það þurfa útgerðarmenn að
sanna að ekki séu umsækjendur um störfin innan Evrópubanda-
lagsríkja svo þeir geti ráðið yfirmenn frá ríkjum utan Evrópu.
Fyrir hverja stöðu sem mönnuð er yfirmönnum utan bandalags-
ríkjanna þurfa útgerðimar að bjóða upp á tvö þjálfunarskiprúm
fyrir verðandi yfirmenn. Hugsanlega getur þessi breyting orðið
til þess að færa „þýsk“ kaupskip aftur undir heimafána sinn og
jafnframt efla möguleika á að þjálfa nýja og verðandi yfirmenn til
að taka við stöðum á þessum skipum.
Risaolíuskip með einföldum byrðing sigla nú hvert af öðru í brotajám.
Tvöfaldir skrokkar
Það er rétt að halda aðeins áfram með risaolíuskipin en í ný-
legri könnun Intertanko sem em alþjóðasamtök olíuskipaeig-
enda, gerði kom í ljós að um 58% risaolíuskipa heimsins eru nú
með tvöföldum byrðingi. Þrátt fyrir það eru um 31 milljón burð-
artonna enn í skipum með einföldum byrðingi en það eru skip
sem smíðuð em fyrir 1990. Einhver þessa skipa munu sigla alll
til ársins 2015 en eins og sagði hér að framan er þó stærsta skip
heimsins að hverfa úr þessum hópi. Vandinn er þó sá að einungis
hefur tekist að fá samninga um smíði á olíuskipum sem svarar til
45% heildarþarfarinnar þar sem þær skipasmíðastöðvar sem geta
smíðað svo stór skip eru þegar uppteknar við smíði risagáma-
skipa.
Dýrt spaug
Maður sem nýlega sendi út falskt Mayday neyðarkall í Banda-
ríkjunum var dæmdur í eins árs fangelsi fyrir vikið. Eftir að
neyðarkallið barst var sett af stað víðtæk leit af hinu talda skipi í
vanda. Tveir strandgæslubátar og þyrla hófu leitina sem stóð yfir
í 15 tíma í vondu veðri eða allt þar til uppgötvaðist að um gabb
væri að ræða. Skipstjórinn var auk þess dæmdur í þriggja ára
skilorð og að greiða fyrir leitina sem kostaði 15 milljónir króna.
Norway
Nú er orðið ljóst að skemmtiferðaskipið Norway mun ekki
lengur kljúfa öldur heimshafnanna. Þetta vel þekkta skip var
smíðað árið 1961 fyrir Frakka og hlaut nafnið France. Var skipið
jafnframt stolt franska kaupskipaflotans en erfiðleikar í rekstri
farþegaskipa í kjölfar vaxandi farþegaflutninga í lofti urðu til þess
að því var lagt árið 1974. Norski útgerðarmaðurinn Kloster
keypti skipið árið 1979 og breytti því í skemmtiferðaskip. Var
skipið talið með glæsilegari farkostum í þessum geira en allt til
síðasta árs lék lánið við skipið og farþega þess. Breyting varð þó á
þegar sprenging varð í vélarúmi þess i maí á síðasta ári með þeint
afleiðingum að sjö skipverjar létu lífið og fjöldi slasaðist. Allt frá
því hefur skipið legið í Þýskalandi en þangað var það dregið eftir
slysið. Áttatíu manna áhöfn starfaði um borð í skipinu við við-
hald allt þar til ákvörðun lá fyrir um að of dýrt yrði að skipla um
vélar í skipinu og því biði vart annað en niðurrif. Nú bendir þó
allt til þess að því verði breytt í fljótandi hótel þannig að ef svo
verður ætti að vera enn möguleiki á að dvelja þar um borð í
lystisemdum um ókomna tíð, bundið við bryggju.
26 - Sjómannablaðið Víkingur