Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2004, Blaðsíða 48
Útskrift Stýrimannaskólans í Reykjavík
Nítián nemendur
ooiio æiE ofí m 35 3B m oo m
Jjfeisiiaiiiisjiu m 30 jjf? 3
00 00 00
önnnnn
ii mi ii
uniu
SAMSKIP
Sjómannaskólahúsið er orðið glæsilegt ásýndum.
Menntafélagið ehf útskrifaði nemendur
frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 21.
maí við hátíðlega athöfn í hátíðarsal Sjó-
mannaskólans.
Menntafélagið ehf tók við rekstri Stýri-
mannaskólans og Vélskólans 1. ágúst
2003 með þjónustusamningi við mennta-
málaráðuneytið og hefur því annast
rekstur þeirra á haustönn og hafa skól-
arnir eftir sem áður aðstöðu í Sjómanna-
skólahúsinu við Háteigsveg. Skólarnir
verða áfram reknir sem sjálfstæðar náms-
einingar og útskrifa nemendur hvor á
sínu sviði þrátt fyrir að hinn daglegi
rekstur hafi verið sameinaður og rekinn
sem ein heild.
Nám á skólaárinu gekk vel fyrir sig
þrátt fyrir ýmsar breytingar í rekstri, en
aðstaða nemenda til náms var nokkuð
bætt með nýjum tölvum, tölvubúnaði og
bættri nettengingu. Einnig voru smíða-
salir endurnýjaðir og nokkru bætt við af
vélum og búnaði.
Sjómannaskólahúsið kom undan
vinnupöllum í upphafi skólaárs og er
ekki annað hægt að segja en að húsið sé
glæsilegt ásýndar og reyndar þannig að
það hefur vart litið betur út nýbyggt.
Uppi eru áform um að lýsa upp turn
skólans sem eitt af áberandi kennileitum
Reykjavíkur og mundi turninn virkilega
sóma sér upplýstur.
Nemendur sem luku námi við Stýri-
mannaskólann í Reykjavík á þessu skóla-
ári voru 19 og er það svipaður fjöldi og
undanfarin ár.
Viðurkenningu fyrir hæstu einkunn
siglingagreina hlaut Lára Hrönn Péturs-
dóttir, en viðurkenningin var veitt af Fé-
lagi skipstjórnarmanna.
Fyrir hæstu einkunn í siglingafræði
hlaut Einar Örn Einarsson viðurkenn-
ingu, en viðurkenningin var veitt af LÍÚ.
Pá fékk Einar Örn viðurkenningu fyrir
félagsstörf.
Formaður nemendafélags skólans, Ein-
ar Örn Einarsson, afhenti forstjóra Land-
helgisgæslunnar gjafabréf fyrir tækjabún-
að um borð í varðskipin úr þyrlusjóði
nemenda.
Endurnýjun atvinnuskírteina
fer fram hjá Siglingastofnun
Frá og með 19. maí n.k. annast Sigl-
ingastofnun mat á endurnýjun at-
vinnuskírteina vélstjóra, stýrimanna og
skipstjóra í ákveðnum tilfellum.
Pegar umsækjandi hefur ekki nægan
siglingatíma skv. lögum, nr. 112/1984
og nr. 113/1984, samanber reglugerð
nr. 118/1996 hefur Siglingastofnun
umsjón með matinu. Ef umsækjandi
hefur hins vegar nægan siglingatíma
fær hann endurnýjun hjá Tollstjóran-
um í Reykjavík eða sýslumönnum úti á
landi.
48 - Sjómannablaðið Víkingur