Náttúrufræðingurinn - 1962, Síða 15
NÁTTÚRUFRÆÐINGU R J NN
9
5 mynd. Gosmökkurinn rís upp úr skýjabreiöunni á öðrum degi gossins. Hæð
gosmökksins um 2 km. — The volcanic cloud on the second day. Height ca
2 km. — Ljósm.: Tómas Tryggvason, 27. okt. 1961.
kippurinn mældist kl. 1100, og var stærð hans 3,.!5 eða af líkri stærðar-
gráðu og jarðskjálftarnir, er mældust vikurnar fyrir gosið, en stærð
þeirra varð allt að 3,9. Jarðskálftarnir í Oskju liafa verið fremur
vægir, svo sem yfirleitt er um jarðhræringar af völdum eldsum-
brota.
Aðfaranótt laugardagsins 28. okt. komu fyrstu jarðfræðingarnir
að eldstöðvunum í Öskju, en fyrstir til að skoða eldana urðu Reyni-
hlíðarbændur, enda eru Dyngjufjöll í landi Reykjahlíðar í Mý-
vatnssveit. Segja má, að allvel hafi verið fylgzt með gosinu fyrstu
vikurnar, þangað til snjóalög og veður gerðu ferðir í Öskju
ókleifar. Skal nú gerð nokkur grein fyrir gangi gossins og athugun-
um á því.
Um Il-leytið fimmtudagsmorguninn 26. október hófst gos á 750
m. langri sprungu í Öskju, rétt innan Öskjuops. Gossprungan hef-
Styrkleikinn er mældur í 12 stigum. Jarðskjálftar með meiri styrkleika en
6 valda tjóni og 9—12 mikilli eyðileggingu.