Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 3
Páll Imsland
Íslandslíkan Reykjavíkurborgar
Á forsíðunni á Náttúrufræðingnum s
að þessu sinni er mynd af hluta af {
Suðvesturlandi, nánar tiltekið Mos- I
fellssveit, Sundum, Esju, Kjalarnesi, c
Hvalfirði, Akrafjalli og Skarðsheiði. í
bakgrunni sér upp á Mýrar en í for- f
grunni eru Bláfjöll og Heiðin há. i
Myndin er tekin af líkani af landinu, 1
sem nú er í smíðum á Módelverkstæði '
Reykjavíkurborgar. Hluti af þessu t
líkani var sýndur á tæknisýningunni í i
Borgarleikhúsinu á 200 ára afmæli i
Reykjavíkur árið 1986. j
Hugmyndina að gerð þess átti borg- <
arverkfræðingur, Þórður Þ. Þorbjarn- s
arson. Afmælisnefndin féllst á hug- 1
myndina og var henni hrint í fram- f
kvæmd nálægt áramótunum 1984 og í
1985. í upphafi var ætlunin að líkanið s
sýndi nokkurn veginn landnám Ing- 1
ólfs, en síðan hefur áhugi á þessari i
hugmynd vaxið smátt og smátt og tek-
ur hún nú til alls íslands. Fyrir sýning- 1
una var þegar búið að gera líkan sem i
spannaði yfir landnám Ingólfs og gott (
betur. Það náði yfir allt svæðið sem 1
kemur við söguna af landnámi hans 1
og rúmlega það. Líkanið sem sýnt var i
náði austan frá Breiðamerkursandi og i
vestur í Faxaflóa. Til norðurs náði 1
það langt inn á Vatnajökul, upp undir 1
miðjan Langjökul og vestur á Mýrar. ‘
Nú er búið að smíða meira en hálft Is-
land. Allt landið sunnan við línu sem
dregin er úr botni Hvammsfjarðar og i
austur í botn Reyðarfjarðar er þegar (
Náttúrufræðingurinn 58 (4), bls. 177-181,1988. 177
smíðað og unnið er að næsta svæði
þar fyrir norðan sem teygir sig frá
Barðaströnd austur til Borgarfjarðar
eystri.
Líkanið er byggt í samræmi við kort
frá Bandaríska hernum, U.S.Army
Map Service Series C762, frá árinu
1948. Þessi kort hafa verið hér í tölu-
verðri notkun á síðari árum. Þau voru
teiknuð eftir loftmyndum sem banda-
ríski herinn tók hér í ágúst og septem-
ber 1945 og ágúst til október 1946. Við
gerð kortanna var höfð hliðsjón af
dönsku kortunum frá Geodætisk In-
stitut í Kaupmannahöfn í mæli-
kvarðanum 1:100.000, prentanirnar
frá 1941 og 1945. Þessi kort voru þá
aðalkortin er sýndu allt landið í svo
stórum mælikvarða. Einnig var eitt-
hvað stuðst við kort frá breska hern-
um, British Admiralty Charts, frá
1947. Eitthvað smáræði af nýjum ís-
lenskum upplýsingum og sömuleiðis
upplýsingum úr njósnum bandamanna
og könnun bandaríska hersins hér var
notað við gerð kortanna, en það mun
vera óverulegt og fæst snerta landslag-
ið sjálft. í þessu kortasetti Bandaríkja-
manna eru samtals 296 kort í mæli-
kvarðanum 1:50.000 og hafa þau 20 m
hæðarlínur. Hvert kortblað þekur um
435 km2 lands.
Líkanið er einnig í mælikvarðanum
1:50.000 en yfirhækkað. Yfirhækkun-
in er tvöföld þannig að hæðarkvarðinn
er 1:25.000. Heildarflatarmál líkansins