Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 10

Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 10
Langumfangsmesta rannsókn á ár- vatni hér á landi til þessa, var gerð á Suður- og Vesturlandi á árunum 1970 til 1974 (Halldór Ármannsson 1970, 1971; Halldór Ármannson o.fl. 1973, Sigurjón Rist 1974, 1986). Megintil- gangur þeirra rannsókna var að kanna efnaeiginleika árvatnsins, mengun þess og hversu hæft árvatnið væri til neyslu og fiskeldis. Jón Ólafsson (1979, 1980), Unnsteinn Stefánsson (1950) og Unnsteinn Stefánsson og Björn Jóhannesson (1978) hafa rann- sakað ýmis uppleyst efni í Mývatni, Laxá í Þingeyjarsýslu, Öskjuvatni, Meðalfellsvatni í Kjós og Miklavatni í Fljótum. Bragi Árnason (1976) notaði vetnissamsætur í grunnvatni til þess að skilgreina rennslisleiðir grunnvatnsins og mat, út frá vitneskju um lekt jarð- laga, hversu langan tíma rennsli vatns- ins tæki í ýmsum grunnvatnskerfum. Efnagreiningar eru til af grunnvatni á Þórisvatnssvæðinu (Guttormur Sig- bjarnarson 1972), grunnvatni sunnan Langjökuls (Ario 1985) og grunnvatni norðan Vatnajökuls (Sigurður Gísla- son 1985, Sigurður Gíslason og Rettig 1986, Sigurður Gíslason og Eugster 1987b). Gerðar hafa verið tilraunir sem leitast við að mæla hversu hratt einstök efni í basalti leysast upp í vatni og hvernig efnainnihald vatnsins breytist með efnaskiptum við bergið (Sigurður Gíslason 1985, Sigurður Gíslason og Eugster 1987a). Nokkrar upplýsingar eru til um efnainnihald úrkomu á íslandi (Veðurstofa íslands 1958-1987, Freysteinn Sigurðsson 1985, Sigurður Gíslason 1985, Sigurð- ur Gíslason og Rettig 1986). VEÐURFAR, VATNSFÖLL OG BERGGRUNNUR Á Suður- og Vesturlandi og í inn- sveitum norðanlands og austan, er meðalhiti hlýjasta mánaðar ársins hærri en 10°C og meðalhiti kaldasta mánaðarins hærri en -3°C. Á annesj- um norðanlands og á hálendinu nær meðalhiti ekki 10°C í hlýjasta mánuð- inum, en meðalárshiti í byggð er ná- lægt 4°C (Jón Eyþórsson og Hlynur Sigtryggsson 1971). Úrkoma er breyti- leg eftir landshlutum. Hún er minnst á Norðausturlandi þar sem hún nær ekki 400 mm/ári en hún er meiri en 4000 mm/ári þar sem hún er mest, í hálendisbrúnum sunnan- og vestan- lands (Jón Eyþórsson og Hlynur Sig- tryggsson 1971). Heildarrennsli vatnsfalla er um 170 rúmkílómetrar á ári (Sigurjón Rist 1956) sem samsvarar 1,65 milljónum tonna afrennslis vatns af hverjum fer- kílómetra lands á ári. Vatnsföll á ís- landi hafa verið flokkuð í dragár, jök- ulár og lindár (Guðmundur Kjartans- son 1945). ísland var hulið jökli á ísöld, en jöklar náðu nokkurn veginn núverandi stærð fyrir u.þ.b. 8000 ár- um (Þorleifur Einarsson 1985). ísland er um 103.000 km2 að flatar- máli. Minna en 24.000 km2 eru huldir gróðri, ógróið land er meira en 64.000 km2, jöklar þekja um 12.000 km2 og vötn minna en 3.000 km2 (Hagstofa íslands 1984). Bergtegundir á íslandi eru að langmestu leyti storkuberg og algengasta bergtegundin er basalt, 80- 85%, samkvæmt Kristjáni Sæmunds- syni (1979). Aflrænt rof á íslandi (aur- burður í ám o.fl.) er um 0,025 til 0,2 km3 á ári eða u.þ.b 500 tonn af hverj- um ferkílómetra lands á ári. (Haukur Tómasson 1986, Sigurður Steinþórs- son 1987). HRAÐI EFNAROFS Á ÍSLANDI í Töflu 1 má sjá skilgreiningar á ýmsum fræðilegum hugtökum sem notuð eru í grein þessari. „Molun og grotnun bergs og jarðvegs á staðnum nefnist veðrun... Brottflutningur 184
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.