Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 25
Páll Imsland
Prófessor G.P.L. Walker á Hawaii
sæmdur heiðursdoktorstitli við Háskóla
íslands og nokkur orð um jarðfræði-
rannsóknir á íslandi
Hinn 22. október 1988 var George
Patrick Leonard Walker prófessor í
jarðfræði við Háskólann í Honolulu á
Hawaiieyjum sæmdur heiðursdoktors-
nafnbót við Raunvísindadeild Há-
skóla íslands.
Walker er fæddur í London á Eng-
landi hinn 2. mars 1926. Hann lagði
stund á nám í jarðfræði við Queens
háskólann í Belfast á Norður-írlandi
og tók þar bæði bakkalárs- (B.Sc.) og
meistarapróf (M.Sc.), 1948 og 1949.
Eftir það nam hann við háskólann í
Leeds á Englandi og þar lauk hann
doktorsprófi (Ph.D.) árið 1956. Fjall-
aði doktorsritgerð hans um holufyll-
ingar í tertíeru blágrýtislögunum í
Antrim-héraði á Norður-írlandi. Þar
er mikið um geislasteina, ýmsar
kvartssteindir og kalsít, eins og er í
tertíera jarðlagastaflanum hér á landi.
Árið 1981 hlaut hann svo annan dokt-
orstitil, D.Sc. við háskólann í Lund-
únum. Hann var valinn félagi í Breska
jarðfræðifélaginu og Breska steina-
fræðifélaginu um 1951, bréfafélagi í
Vísindafélagi íslendinga 1968 og félagi
í Konunglega Vísindafélaginu í Lond-
on árið 1975. Hann var sæmdur ís-
lensku Fálkaorðunni (riddarakrossi)
árið 1980 og Lyell-orðunni af Jarð-
fræðifélaginu í London árið 1982.
Hann var valinn vísindamaður ársins á
Hawaii árið 1987. Eftir hann liggja yfir
100 ritgerðir í gagnrýnum fagtímarit-
um og hann hefur haldið fyrirlestra á
yfir 20 alþjóðlegum jarðfræðiráðstefn-
um og sömuleiðis yfir 20 fyrirlestra á
jarðfræðiþingum heima fyrir, þar sem
hann hefur starfað, þ.e.a.s. á Eng-
landi, Nýja Sjálandi og Bandaríkjun-
um. Fleira má telja upp um frama
hans og afrek sem vísindamanns.
Walker hóf störf við rannsóknir og
sem kennari við Imperial College of
Science and Technology við Lundúna
háskóla árið 1951 og þar starfaði hann
til ársins 1978, er hann fluttist til Nýja
Sjálands. Þar var hann við rannsóknir
í þrjú ár og sat í rannsóknastöðu sem
kennd er við kaptein Cook, hinn
fræga landkönnuð, sem fann Hawaii-
eyjar og lét þar líf sitt fyrir innfædd-
um. Árið 1981 tók hann við prófess-
orsstöðu í eldfjallafræðum við háskól-
ann á Hawaii-eyjum (1. mynd).
Prófessorsstaða þessi er kennd við
heimsfrægan eldfjallafræðing sem átti
starfsferil sinn á Hawaii. Þetta var
prófessor Gordon A. Macdonald, sem
Náttúrufræðingurinn 58 (4), bls. 199-211, 1988.
199