Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1988, Qupperneq 29

Náttúrufræðingurinn - 1988, Qupperneq 29
sem sífellt drógu að sér athygli manna vegna sögu sinnar og virkni. Heklu- gosið mikla 1947-1948 var mönnum enn í fersku minni og enn var unnið að rannsóknum á því. Hverasvæði eins og Haukadalur með hinn fræga Geysi voru sífellt undir smásjánni og skýringa var leitað á orsökum hvera- virkninnar. Hveragerði og Mosfells- sveit nutu allmikillar athygli vegna vaxandi áhuga manna á nýtingar- möguleikum orkunnar. Hreyfingar jöklanna og ástand þeirra og ekki síð- ur áhrif þeirra á land og sögu voru viðfangsefni manna af og til. Einnig voru hér hafnar jarðskjálftamælingar. Hins vegar var um að rœða fundar- staði ýmiskonar jarðefna, eða jarðlög sem frœðilega eru áhugaverð eða áttu sér langa rannsóknasögu. Hér má nefna fræga fundarstaði steinda eins og geislasteinastaðinn Teigarhorn í Berufirði, silfurbergsnámuna á Helgu- stöðum í Reyðarfirði og gömlu brennisteinsnámurnar í Þingeyjarsýslu og á Reykjanesskaga. Einnig má nefna fundarstaði sjaldgæfra bergteg- unda, svo sem gabbró- og granófýr- innskotin á Suðausturlandi og hrafn- tinnustaði eins og Hrafntinnuhrygg og Hrafntinnusker. Enn fremur má nefna fundarstaði steingervinga eins og við Brjánslæk á Barðaströnd, á Tjörnesi og í Búlandshöfða, þar sem steingervingarnir gáfu upplýsingar um liðna tíð og staðhætti í jarðsögu lands- ins. Það má því með nokkrum rétti segja að árið 1955 hafi jarðfræði ís- lands einkennst af frægum stöðum hingað og þangað um landið. Inn á milli þessara staða var harla lítið ann- að en blágrýti, sem menn vissu lítið um og höfðu lítinn áhuga á. Móbergs- fjöllin og eldstöðvarnar um miðbik landsins voru þar nokkur undantekn- ing. Þekkingin var ekki jöfn um land- ið sem heild og sannast sagna skildu menn ekki mikið í því hvernig þetta land hafði myndast miðað við skilning okkar á þeim málum í dag. Hinir frægu staðir úti í gamla jarðlagastafl- anum áttu sér ekki hliðstæður inni á virku svæðunum, eins og þeir nú eiga sér yfirleitt í huga okkar. Hugmynd Wegeners um rek landa hafði ekki náð fótfestu í heimi jarðfræðinnar al- mennt og heildarmyndin af virkum svæðum jarðarinnar var í molum. Hérlendis örlaði þó ætíð á hugmynd- um Wegeners í skrifum og umfjöllun manna (sjá Páll Imsland 1984), en al- gjörlega án þess skilnings á ferlinu eða áhrifum þess á myndun og mótun landsins, sem er fyrir hendi í dag. Það kom ekki fyrr en síðar. Skömmu áður en Walker hóf hér rannsóknir sínar hafði hollenskur jarðfræðistúdent komið hér til rann- sókna um nokkurt skeið. Þetta var Jan Hospers, sem vann að rannsókn- um á seguleiginleikum bergs, einkum í Vaðlaheiði og nágrenni. Hann komst að því að seglusviðið sem stjórnar seg- ulstefnunni, sem skráist í bergið þegar hraunkvikan storknar hafði breyst aft- ur og aftur (Hospers 1953 og 1954a,b,c). Áður höfðu menn mælt mismunandi segustefnur í bergi, en ekki var ljóst að um margendurtekin skipti væri að ræða. Basalthraunlaga- staflinn hér sýndi Hospers að í gegn- um jarðsöguna höfðu þessi skipti orð- ið aftur og aftur. Þar með var kominn fram möguleikinn á því að mæla seg- ulstefnur í bergi vítt og breitt og bera saman á milli staða og greina jarðlaga- syrpur af sama aldri. í þessu umhverfi þekkingar og áhuga á jarðfræði ís- lands hófst Walker handa á Austfjörð- um. í upphafi var áhugi hans alls ekki ólíkur íslensku jarðfræðinganna. Hann hugðist rannsaka holufyllingar og steindir þeirra. Þessar rannsóknir 203

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.