Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 32

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 32
hans um íslenska jarðfræði skipta tug- um, ef þær ná ekki hundraði. Walker komst fljótlega í kynni við prófessorana Þorbjörn Sigurgeirsson og Trausta Einarsson sem unnu mikið að rannsóknum á íslenskri jarðfræði. Þeir höfðu tekið að nýta hér hug- myndir Hospers um seguleiginleika basaltsins og stundað rannsóknir á segulstefnum í bergi og segulskiptum í staflanum (Leó Kristjánsson 1982). Af þeim lærði Walker margt um íslenska jarðfræði að eigin sögn. Hann segist hins vegar ekki hafa kynnst öðrum ís- lenskum jarðfræðingum að ráði. Sig- urði Þórarinssyni kynntist hann mjög lítið, en lærði af skrifum hans um gjóskulög og íslensk eldfjöll, að beita mælingum og magnbundnum athug- unum á alla þætti eldvirkninnar og það sem hún framleiðir (sjá viðtal H.Ó. við Walker í Morgunblaðinu 1988). Árið 1963 hófst gosið í Surtsey. Þetta var undir lok reglulegra heim- sókna Walkers til Islands sem voru ár- ið 1965. Gos þetta breytti áhugasviði hans allmikið og þó hann tæki ekki þátt í rannsókn þess á meðan það stóð, þá beindi gosið áhuga hans að hreinum eldfjallafræðum sem hafa verið hans aðalviðfangsefni alla tíð síðan. Hann gerði síðar í félagi við annan, grein fyrir eiginleikum gjósku af Surtseyjargerð og hvernig lesa má hegðun eldgosanna út út kornagerð gjóskunnar (Walker og Croasdale 1972 og Walker 1973). Árið 1973 kom hann hingað til að skoða gosið á Heimaey. Þá var hann kominn á kaf í eldfjallarannsóknir (3. mynd) og stundaði þær mest á Azoreyjum, ít- alíu og Kanaríeyjum. Síðar bættust Nýja Sjáland, Indónesía og Hawaii- eyjar við og raunar ýmis lönd önnur. I sambandi við heiðursdoktorsút- nefninguna kom Walker hingað til lands og dvaldi hér í nokkra daga. Hann hélt þá fjóra fyrirlestra á vegum Háskóla íslands og Sigurðarsjóðs. Sig- urðarsjóður var stofnaður árið 1987 til minningar um prófessor Sigurð Þórar- insson jarðfræðing. Hann er í vörslu Jarðfræðafélags íslands og er ætlaður til þess að standa straum af kostnaði við að fá hingað til lands erlenda fyrir- lesara um jarðvísindi og er Walker fyrsti fyrirlesarinn á vegum sjóðsins. Fyrirlestrarnir fjölluðu um: 1) Eldfjallafræði Hawaii-eyja og heita reitsins undir þeim. 2) Eldfjallafræði Taupo eldfjalla- svæðisins í Nýja Sjálandi. 3) Þunn en mikið sambrædd gjóskulög. 4) Nýjungar í rannsóknum á hraun- um. Voru öll erindin vel sótt og gerður góður rómur að máli hans. Frásögn hans er afar skýr og skilmerkileg, ekki örlar á málaflækjum eða aukaatrið- um. Gögn hans eru mikilvæg og ætíð vandlega fengin og gaumgæfilega túlkuð. Honum liggur lágt rómur, svo að erfitt getur verið að heyra mál hans, en það virðist ekki koma í veg fyrir að til hans flykkist áheyrendur og stúdentar. Hann sýndi glöggt í þessum erindum, að þrátt fyrir 62 ára aldur er andi hans og áhugi á jarðfræði ennþá eins og ungs manns. Enn frekari sönn- un þess er, að hann notaði hverja stund sem hér gafst frí, til þess að fara út í náttúruna og skoða og mæla ís- lensk eldfjöll og fyrirbæri þeirra. Þetta er í fullu samræmi við þá mynd sem almennt er dregin upp af Walker. Þar sem hann kemur á ráð- stefnur og þing notar hann hvert augnablik sem gefst til þess að skoða jarðfræði viðkomandi staðar, jafnvel svo að málefni þingsins sitja heldur í skugganum. Um þetta getur undirrit- aður dæmt af eigin raun. Á fjölmennu þingi eldfjallafræðinga á Hawaii árið 206

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.