Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 38
FRJÓKORN ÓLAFSSÚRU
Myndin sýnir frjókorn Ólafssúru (Oxyria digyna (L.) Hill) eins og það lítur út í
rafeindasmásjá. Stækkunin er nærri 5000 föld. Raunveruleg stærð er nálægt
0,02 mm (20 míkron). Frjókornið er hnöttótt með þrem rifum (colpus), sem
liggja eins og lengdarbaugar, á hverri rifu er eitt gat {porus). Á myndinni má
sjá tvær slíkar rifur, en götin eru ekki greinanleg. Ólafssúrufrjó tilheyra því
flokki „tricolporate“ frjókorna. Ættkvíslin Rumex, sem hundasúra og túnsúra
eru af, myndar mjög áþekk frjókorn. Síðastliðið sumar, þegar magn frjókorna í
borgarloftinu var mælt, reyndist þessi gerð frjókorna vera næstalgengust, á eftir
grösum. Ólafssúra er heimskauta- og fjallajurt en hinar súrurnar tvær fylgja
fremur byggð og jarðraski af mannavöldum. Þess vegna er líklegra að flest
súrufrjó á Reykjavíkursvæðinu séu komin frá hunda- og túnsúru fremur en
Ólafssúru. Ljósmyndin var tekin á Rafeindasmásjárstofu Dýrafræðistofnunar-
innar í Lundi, Svíþjóð.
Margrét Hallsdóttir
Náttúrufræöingurinn 58 (4), bls. 212, 1988.
212