Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 45

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 45
er látið nægja að kynna hana. En að nafn Sigurðar Þórarinssonar sé ekki á bók fært er rangt því hann er sagður til rannsóknar- sögunnar í formála bókarinnar, sem for- göngumaður gjóskurannsókna. SKÝRINGARMYNDIR, TÖFLUR OG HEIMILDIR Um ljósmyndir mun ég ekki fjalla rúms- ins vegna né heldur um kort eða innskots- texta. í stað þess koma hér nokkrar at- hugasemdir vegna gagnrýni Páls á skýring- armyndir, töflur og heimildalista. Páll gagnrýnir skýringarmynd á bls. 14. Hann segir litina ekki skýrða en í texta með myndinni stendur: „Mismunandi rauðlitun táknar mismunandi mikla hlut- bráð“! Að auki er það ofætlun að myndin skýri hvernig kvika endurnýjast í hlutbráð- inni kvikulinsu undir Vestmannaeyjum. Hver veit hvernig það gerist og hvort það gerist? Einn gagnrýnandi annar en Páll (af fimm) hefur gert athugasemd við kviku- hólf á mynd á bls. 21. Menn hneigjast til þess að sjá hólfið til hliðar við öskjuna. Hluti þess er það líka. Mín hugmynd var einfaldlega þessi: Hólfið er egglaga og er langásinn láréttur og liggur á ská inn í myndina. Askjan er ofan við þykkasta hlutann (inni í kubbnum) en aðeins er skorið af bláendanum sem sést í sniðinu ásamt einum af mörgum göngum sem liggja frá hólfinu. Kröflumyndin á bls. 34 sýnir framhlið gossprungu (gang) sem sker kvikuhólf og eru örvar notaðar til að sýna færsluáttir kviku. Myndatextinn er fylli- lega skýrandi. Páll kvartar undan því að gangurinn sjáist ekki í myndfletinum og amast við örvunum. Ef gangurinn ætti að vera aðalatriðið, væri framhlið kubbsins einfaldlega rauð eins og lagið undir og myndin sýndi alls ekki skýrt hvaða mögu- leikar eru á hreyfingu kviku upp í eða langs eftir viðkomandi sprungu sem sést sem opin sprunga, misgengi eða gígaröð á yfirborðinu. Gangurinn á norðurveggnum er ekki sá hinn sami og framhliðin sýnir enda til hliðar við sprunguna sem þar er og á að tákna afleiðingu kvikuhlaups úr kvikuhólfinu eða kvikulaginu þar undir og því ekki endilega tengdur kvikulaginu undir Kröflu, því möguleikarnir eru tveir. Að öllu þessu sögðu er einsýnt að myndin er alls ekki eins flókin eða illskiljanleg og Páll vill vera láta. Hún er fengin að láni lítt breytt úr skýrslu Axels Björnssonar á Orkustofnun. Á gagnrýni á mynd á bls. 78 felst ég ekki. Allir sem ég hef spurt sjá ekki betur en súra kvikan komi úr kvikuhólfi Torfa- jökuls þótt fölrautt kvikuhlaupið (basalt- gangur) sé ekki gult í ofanálag. Og bas- altið undir súru bráðinni í hólfinu er há- rautt og neðan gangsins þannig að hætta á ruglingi er hverfandi. Myndir af Heklu og Tindfjallajökli bera báðar botn þar sem hlykkjótt lína og óræður dökkur flötur eru neðst á þeim báðum. Með þessu vill höfundur sýna að þarna sé sleppt að útskýra berggrunninn. Þarna er hvorki um að ræða þá nýjung eða galla sem Páll veltir fyrir sér. Myndin af Tindfjallaeldstöðinni er hins vegar rétti- lega dæmd gölluð í heild sinni. Henni var bætt við á síðustu stundu og hún var ekki rétt hönnuð. Um hana verður skipt. Páll Imsland fellst ekki á töflu um berg- tegundaraðir á íslandi (bls. 13, ATG). Hann vill t.d. ekki að „transitional“ basalt sé nefnt millibasalt. Mér sýnist ástæðan vera sú að annars staðar í heiminum eru til millistig milli bergætta en jafnframt eru þau millistig ólík þeim íslensku. Skýrt er tekið fram í íslandseldum að hér sé um flokkun á íslenskum bergtegundum einum að ræða og notað er kerfi sem einhverjir íslenskir sérfræðingar að minnsta kosti hafa fært sér f nyt - þó ef til vill megi telja að um einföldun sé að ræða. Og hvað ank- aramítið undir Eyjafjöllum áhrærir þá þykist ég vita um fræðilegu umræðuna um greiningu þess, rétt eins og um þóleiítið í Öræfajökli. Meðan öll þessi tiltölulega fræðilegu mál eru ekki á hreinu er töflu- skiptingin ekki gróf synd. Páll gerir furðulegt stúss í kringum þrjár töflur er geyma óviss eða hugsanleg (möguleg) gos sem talin eru hafa orðið í nokkrum þekktum eldstöðvum. Þar eru þó bæði ártöl og umsögn um heimild (t.d. orðið óviss), jafnvel spurningarmerki! Gildi svona taflna er fólgið í því að þær sýna bæði hæpin og örugg gögn (eða óviss 219

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.