Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 50

Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 50
inga. Póra Ellen Pórhallsdóttir var endur- kjörin formaður. Aðrir sem áttu að ganga úr stjórn voru Ingólfur Einarsson og Eva G. Þórhallsdóttir. Ingólfur var endurkjör- inn en Eva baðst undan endurkjöri og var Björg Þorleifsdóttir líffræðingur kosin í hennar stað. Varamenn í stjórn voru kjör- in áfram þau Gyða Helgadóttir og Einar Egilsson. Magnús Árnason og Sveinn Ól- afsson voru áfram kosnir endurskoðendur og Þór Jakobsson til vara. Einar Egilsson greindi frá störfum áhugahóps um byggingu náttúrufræðihúss. Ágúst H. Bjarnason, sem sæti átti í nefnd menntamálaráðherra um byggingu nátt- úrufræðihúss, sagði frá störfum og niður- stöðum nefndarinnar. Meirihluti nefndar- innar lagði til að komið yrði á fót sjálfs- eignarstofnun með þátttöku ríkis, Reykjavíkurborgar, Háskóla Islands og fleiri skóla og rannsóknastofnana. Sigurður H. Richter greindi frá störfum dýraverndarnefndar. Skýrsla barst frá Hlyn Óskarssyni um aðalfund Landvernd- ar. Formaður gerði grein fyrir tillögum stjórnar um hækkun árgjalds og var ein- róma samþykkt að árgjald fyrir 1988 skyldi vera kr. 1500. Þór Jakobsson bar upp tillögu um björg- un hvítabjarna sem villast að Islands- ströndum. Að loknum nokkrum umræð- um var eftirfarandi ályktun samþykkt: Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræði- félags, haldinn laugardaginn 20. febrúar 1988, skorar á menntamálaráðuneytið að stuðla að aukinni þekkingu á hvítabirn- inum (Ursus maritimus). Menntamála- ráðuneytið láti kanna í samráði við er- lenda hvítabjarnafræðinga, t.d. í Kanada, Noregi eða Sovétríkjunum, hvort ráð séu til að a) ná þeim hvítabjörnum lifandi sem berast hingað til lands á ís úr Austur- Grænlandsstraumi og b) bjarga þeim aftur yfir á meginísinn handan Islands- hafs. Einnig var samþykkt eftirfarandi álykt- un borin upp af Þóru Ellen Þórhallsdótt- ur: Aðalfundur Hins íslenska náttúru- fræðifélags, haldinn laugardaginn 20. febrúar 1988, treystir því að menntamála- ráðherra fylgi fast eftir áliti nefndar um byggingu náttúrufræðihúss. Á næsta ári verða 100 ár liðin frá því að Hið íslenska náttúrufræðifélag var stofnað og 42 ár frá því að ríkið þáði náttúrugripasafnið að gjöf frá félaginu og skuldbatt sig til að byggja yfir safnið. Félagið skorar á stjórn- völd að taka ákvörðun um byggingu nátt- úrufræðihúss fyrir aldarafmæli félagsins. FRÆÐSLUFUNDIR Á síðasta ári voru haldnir sex fræðslu- fundir í stofu 101 í Odda, hugvísindahúsi Háskólans. Að venju voru þeir haldnir síðasta mánudag hvers mánaðar og var efni fjölbreytilegt. janúar: Agnar Ingólfsson: Náttúrufar á Costa Rica. Fundargestir voru um 60. febrúar: Páll Imsland: Eldvirkni á Jan Mayen og Island: uppruni og þróun virkninnar í ljósi óstöðugra rekbelta á Norður-Atlantshafssvæðinu. Fundar- gestir voru 54. mars: Ólafur Karl Nielsen: Litli skratti - um lifnaðarhætti smyrils á íslandi. Fundargestir voru 83. apríl: Kristján Sæmundsson: Gossaga Kröflu. Fundargestir voru 66. október: Margrét Hallsdóttir: Breyting á gróðurfari í kjölfar landnáms. Fundar- gestir voru 91. nóvember: Páll Einarsson: Hugsanlegt þrýstingssamband milli íslenskra eld- stöðva. Fundargestir voru 99. Eins og sést var fundarsókn jöfn, en alls mættu á fyrirlestrana um 450 manns, eða 75 manns að jafnaði. Er þetta betri fund- arsókn en mörg undanfarin ár og er von- andi að hún haldi áfram að aukast. Áhersla hefur verið lögð á að betri kynn- ingu á fyrirlestrunum og eru nú festar upp um eða yfir 40 auglýsingar á stofnunum og skólum á höfuðborgarsvæðinu. Einnig eru fréttatilkynningar sendar til dagblaða eins og verið hefur. Því er nær undantekning- arlaust vel tekið þegar þess er farið á leit við menn að þeir haldi fyrirlestra fyrir fé- lagið og þakkar stjórnin fyrirlesurum þeirra framlag. Einnig vill stjórnin þakka 224
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.