Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 52
og að Jökulsárlóni. Á leiðinni var stansað
við Svínafellsjökul þar sem Páll Einarsson
sagði mönnum frá fróðlegum göngum í
fjallinu. Sigurður Björnsson á Kvískerjum
bættist í hópinn og sagði frá Breiðamerk-
urjökli og Breiðamerkursandi og Eyþór
Einarsson upplýsti menn um gróður í
Esjufjöllum og öðrum jökulskerjum sem
sáust í fjarska. Hádegisnestið var snætt við
skála Jöklarannsóknafélagsins og gengið
upp að jöklinum. Næst var ekið í Ingólfs-
höfða, en sú ferð gerðist lengri en áætlað
var. Sandurinn var óvenju þurr og festust
bflarnir hvað eftir annað, þótt allir væru
þeir með drif á öllum hjólum. Stærsti bfll-
inn gat þó dregið hina upp og komust allir
í Höfðann. Par uppi var hið fegursta
skyggni og blasti suðurströndin við til
beggja átta en inn til landsins fjöll og jökl-
ar og er þetta ekki sísta sjónarhornið á
Öræfajökul. Veður hélst hið fegursta og
hlustuðu menn á Sigurð Björnsson rekja
margt fróðlegt um sögu byggðarinnar. Á
eftir var gengið að bjarginu og fuglarnir
skoðaðir undir leiðsögn Kristins Hauks
Skarphéðinssonar. Um 20 manns gistu í
Höfðanum um nóttina. Þeir voru vaktir af
Kristni Hauki klukkan 2 og skriðu út mis-
vel vakandi. Hófst nú leit að sjósvölum
sem um þetta leyti koma af hafi í holur
sínar í höfðanum. Heldur fóru svölurnar
hljótt þessa nótt en þó sá um helmingur
hópsins þær.
Á sunnudegi var haldið heimleiðis. Há-
degisnestið var snætt við Tröllshyl í Land-
broti og þar ræddi Jón Jónsson um gos-
sögu Skaftárelda og aldur hraunanna. Fyr-
irhugað var að skoða Dyrhólaey, en veður
versnaði er vestar dró og var því hætt við
það. Til Reykjavíkur var komið um sjö-
leytið um kvöldið. Þátttakendur í ferðinni
voru alls 148. Gefinn var úr 20 blaðsíðna
bæklingur í tilefni ferðarinnar þar sem
dreginn var saman fróðleikur um jarð-
fræði, gróður og dýralíf og sögu sveitar-
innar milli sanda. Höfundar að bæklingn-
um voru Eyþór Einarsson, Hálfdán
Björnsson, Páll Imsland, Ragnar Stefáns-
son, Sigurður Björnsson og Þorleifur Ein-
arsson.
Aðsókn að löngu ferðinni var mun
meiri en hægt var að sinna. Biðlista var
lokað þegar 200 manns höfðu skráð sig.
Svipað var uppi á teningnum árið 1987 fyr-
ir ferðina á Rauðasand og Látrabjarg. Þá
voru þátttakendur 125 og aftur komust
mun færri en höfðu skráð sig. Ferðin síð-
astliðið sumar mun vera fjölmennasta
ferðin sem farin hefur verið á vegum fé-
lagsins (148 manns). Þessi mikla þátttaka
er félaginu vissulega gleðiefni, en spurning
er hvort æskilegt sé að hafa ferðirnar svo
fjölmennar. Félagið vill kappkosta að allir
sem vilja geti komist með, en hinu er ekki
að neita að svo fjölmennar hópferðir eru
þyngri í vöfum og fá á sig annað yfirbragð
en ferðir minni hópa. Stjórnin vill ógjarn-
an takmarka þátttöku svo að minnihluti
þeirra sem vilja, komist með. Líklega yrði
erfitt að fara tvisvar þar sem ferðirnar eru
óhjákvæmilega á þeim tíma sem dýr-
mætastur er náttúrufræðingum til rann-
sókna.
Stjórnin færir öllum þeim þakkir sem
tóku að sér leiðsögn og fararstjórn eða
lögðu á annan hátt fram krafta sína fyrir
félagið. Ferðaskrifstofa Guðmundar Jón-
assonar lagði til bfla í allar ferðirnar og á
sérlegar þakkir skildar fyrir að útvega
fjóra trukka fyrir löngu ferðina, en án
þeirra hefði ekki verið hægt að fara í Ing-
ólfshöfða. Stjórnin vill sérstaklega þakka
bflstjórunum frá Guðmundi Jónassyni fyr-
ir lipurð og hjálpsemi, einkum í löngu
ferðinni. Þá þakkar stjórnin Náttúru-
verndarráði góða fyrirgreiðslu í þjóðgarð-
inum í Skaftafelli.
ÚTGÁFU STARFSEMI
Útgáfa Náttúrufræðingsins hefur gengið
vel. Nú eru að koma út tvö síðustu hefti
57. árgangs. Ritstjóri Náttúrufræðingsins
var Árni Einarsson, en hann hefur nú sagt
því starfi lausu og mun hætta störfum um
mitt þetta ár. Árni hefur nú verið ritstjóri
um 3ja ára skeið. Þegar hann tók við rit-
inu hafði útgáfa þess dregist nokkuð aftur
úr en hún er nú komin á réttan kjöl.
Stjórnin þakkar Árna fyrir frábær störf
sem ritstjóri. Það er því með eftirsjá að
stjórnin horfir á Árna hverfa til annarra
starfa, en veit jafnframt að valist hefur
góður maður í staðinn. Við ritstjórninni
226