Náttúrufræðingurinn - 1937, Qupperneq 5
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 81
flllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Tunglið.
Tunglið er næsti nábúi vor í himingeimnum og stöðugur föru-
nautur jarðarinnar á leið hennar um sólina og gegnum ómælis-
geiminn. Það veldur og næst sólinni mestum utan að komandi
áhrifum á jörðina, flóðbylgjan skellur upp að ströndunum tvisvar
á sólarhring og hin mánaðarlega ganga þess um jörðina hefir
sett mark sitt á tímatal vort. Tunglið kemur og mikið við sögu
stjörnurannsóknanna frá upphafi; fjarlægðin til þess er hið
fyrsta mælda skref mannsins út í geiminn, ef svo má að orði kom-
ast, og athugun á snúningi þess um jörðina leiddi til þess, að
„mesti eðlisfræðingur allra tíma“, Newton, fann lögmálið um að-
dráttaraflið fyrir 250 árum. Af sömu rótum er runnin þekkingin
um það, að í iðrum jarðar er mikið af þungum efnum, líklega
aðallega járni, og þannig mætti halda áfram.
Hér skal nú reynt að skýra nokkru frekar frá þekkingu manna
á tunglinu og ýmsu í sambandi við það. Ganga þess meðal fasta-
stjarnanna yfir þvera festinguna einu sinni á mánuði hverjum
og kvartilaskiptin er vitanlega það fyrsta, sem menn taka eftir.
Tunglið snýr alltaf sömu hliðinni að jörðinni og hefir það, sem
kallað er bundinn snúning, en kvartilaskiptin orsakast af því, að
afstaðan til sólarinnar breytist. Tunglið gengur kringum jörð-
ina einu sinni á mánuði; nýtt er það milli jarðar og sólar og snýr
þá bjarta hliðin frá okkur, eftir viku sjáum við helming björtu
hliðarinnar, eftir hálfan mánuð alla hliðina. Þá er tunglið fullt
og stendur gegnt sólu. Vaxandi og minnkandi tungl má þekkja
í sundur á því, að vaxandi líkist það D, en minnkandi C.
Til þess að hægt sé að lýsa göngu tunglsins, er nauðsynlegt að
fara stuttan útúrdúr. Sólin sýnist færast á meðal fastastjarnanna
um eina hringgráðu á dag, eða allan hringinn, 360 gráður, á ári,
og fer þá alltaf sömu leið, í gegnum hin sömu stjörnumerki, ár
eftir ár. Þessi braut á festingunni er kölluð ekliptika eða sólbraut-
in, en beltið meðfram henni dýrahringurinn. í dýrahringnum
Jiggja þau tólf merki, sem kveðið var um:
Hrútur, tarfur, tvíburar,
teljum þar til krabba og ljón,
mey og vog þá vitum þar
vorri birtist dreki sjón.
6