Náttúrufræðingurinn - 1937, Síða 24
100 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
iiiiiiimiimmiiiiiiiimiimmiiimmimiimiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimi
leifar af flóru þess tíma. ÞriSja og fjórða mynd sýna útbreiðslu
þessara tegunda. Það sést, að maríulykillinn er hvergi fundinn
annarsstaðar á landinu nema á einum stað við Eskifjörð, en hins
vegar er dvergstörin útbreidd um Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýsl-
ur og fundin á þremur stöðum öðrum að minnsta kosti, en svo
lítil planta getur auðveldlega leynzt víðar. Á 3. mynd sést, að lot-
sveifgrasið er fundið við Eyjafjörð á tveimur stöðum, á öræfun-
um norðaustan við Vatnajökul er það allútbreitt, en er auk þess
4. mynd. Útbreiðsla dvcrgstarar (Carex pedata) á Islandi.
fundið á Landmannaafrétti og í Hvannadal í Öræfum. tJt frá
þessu er að minnsta kosti ekki hægt að segja, að þær bendingar,
sem gróðurfræðin gefur, mótmæli tilgátunum um þessi íslausu
svæði, heldur virðist hún fremur benda í þá átt að styðja þær.
Þá skal staðar numið að sinni. Eg hefi hér getið um þessar
skoðanir meðal annars í því skyni að benda á viðfangsefni í rann-
sókn á útbreiðslu íslenzkra plantna. Eg hafði í fyrstu ætlað að
gera hér einnig lítilsháttar samanburð á fjallagróðri hér og í
Skandinavíu, en slíkt hefði orðið of langt mál og verður því að
bíða betri tíma.
Akureyri, 1. apríl 1937.
Steindór Steindórsson frá Hlöðum.