Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 28
104 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
iiiiimimiiiimiimmimiiiimmiimimimimmmiiiiimimimiimmmmiimmmimimimmiiiimimimmmmiiiiiiiimiiiir
Um fardaga farfuglanna.
(Úr bréfi frá hr. Sigurði Björnssyni á Kvískerjum, dags.
þ. 12. sept. 1936).
„Um fardaga farfuglanna í ár, er það fyrst að segja, að
þeir eru fæstir farnir enn, eða þá fáir. Þó virðist mér að þeim
hafi heldur fækkað hér síðan þ. 8. þ. mán. Þann dag sá ég samt
einn óðinshana, þrjár maríuerlur og ca. 40 kríur; ennfremur
nokkra spóa, lóur, kjóa, skúma og þúfutittlinga. Steindeplarnir
eru sennilega farnir. I gær (11. sept.) sá ég ekki nema 15 kríur
og þá aðeins úti við sjó. Óðinshana sá ég síðast í gær“. •— •—
„Um fuglalífið hér má geta þess, að svartbakurinn varp
mjög vel í vor, en unginn drapst mest allur tæplega hálfvaxinn.
Ef til vill hefir valdið því ætisleysi. Þ. 7. þ. m. sá ég ófleygan
skúmsunga og um þrjá aðra vissi ég ófleyga, fram að s.l. mán-
aðamótum. Mun það vera sjaldgæft að þeir séu svona seinir á
sér. Vorið 1932 fann ég fyrstu skúmseggin þann 9. maí, en það
er nokkru fyrr en venja er til“.
(M.B.).
Tilbreytni í dýraríkinu og
kirtlastarfsemin.
Innrásarkirtlar, eða blindir kirtlar, eru þeir kirtlar í líkömum
manna og dýra nefndir, sem veita vökva sínum beint inn í blóðið
(og lymfuna) til aðgreiningar frá þeim kirtlum, sem veita vökva
sínum inn í meltingarfærin, eða út á yfirborð líkamans.
Einn af innrásarkirtlunum er skjaldkirtillinn (Glandula thyre-
oidea). Hann er framan á barkanum ofanverðum og barkakýlinu
neðanverðu. Kirtilvökvi hans nefnist thyroxin.
Kirtlar þessir (innrásarkirtlarnir) eru í öllum dýrum af hrygg-
dýrafyikingunni.
Hamskipti og Thyroxin.
Af hryggdýrunum er, sem kunnugt er, einn flokkur, sem tekur