Náttúrufræðingurinn - 1947, Blaðsíða 37
Tómas Tryggvason:
BÓKARFREGN
Oskar Niemczyk:
SPALTEN AUF ISLAND
Verlag von Konrad Wittwer, Stuttgart 1943.
Eins og ýmsa hér mun reka minni til, dvöldust 5 þýzkir náttúru-
fræðingar við rannsóknir í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum sumarið
1938. Árangurinn af starli Jreirra birtist í bók þeirri, sem hér um
ræðir.
í formála bókarinnar gerir fararstjórinn grein fyrir tilgangi leið-
angursins og tilhögun. Jarðeldasvæði Jrað, sem liggur skáhallt yfir
mitt landið, hefur mjög vakið athygli vísindamanna, og hafa jarð-
fræðingar ekki orðið á eitt sáttir um eðli þess. Hafa sumir lialdið
Jrví fram, að svæði Jretta sé geysistór siglægð, Jr.e. allt Jretta svæði
hafi lækkað að miða við landið beggja vegna. Aðrir eru þeirrar
skoðunar, að jarðeldasvæðið beri að skoða sem risbungu, Jrað iiafi
hækkað að tiltölu við aðra hluta landsins. Enn aðrir halda Jrví fram,
að svæði þetta hafi hvorki hækkað né lækkað að miða við aðra
landshluta, heldur séu eystri og vestri hluti landsins að fjærlægjast
iivor annan og sé Jjví jarðeklasvæðið, gjár Jress, sprungur og gíga-
raðir afleiðing af láréttum jarðhræringum. Tilgangur leiðangursins
var að stuðla að Jrví, að Jjessi gáta jarðeldasvæðisins yrði ráðin, og
skyldi Jjví takmarki náð með landmælingum jafrihliða jarðfræði-
legum athugunum og jarðfræðilegum mælingum.
Verkefni skiptast þannig milli vísindamanna leiðangursins: Jarð-
frœði, próf. F. Bernauer, landmælingar: próf. O. Niemczyk (farar
stjóri) og dr. ing. E. Esmschermann, allir við Tekniska háskólann
í Berlín, jarðeðlisfræði, próf. E. Ansel við háskólann í Freiburg