Náttúrufræðingurinn - 1950, Blaðsíða 3
Árni Friðriksson:
Sigurleifur Vagnsson
18. júlí 1897 — 2. marz 1950
SigurleifurVagnsson léztí Reykja-
vík 2. marz þ. á. Hann var fæddur
hinn 18. júlí 1897 að Kleifastöðum í
Gufudalssveit. Foreldrar hans voru
Vagn Guðmundsson, bóndi þar, og
kona hans, Þuríður Gísladóttir. Lif-
ir Vagn enn í hárri elli. Eigi verða
ættir Sigurleifs raktar hér. Nóg að
geta þess, að hann er kominn af
traustum breiðfirzkum stofnum í
báðar ættir.
Ungur fluttist Sigurleifur með
foreldrum sínum að Hallsteinsnesi í
Þorskafirði og dvaldist þar síðan
þangað til hann lagði út í lílið 14
vetra gamall. Fluttist hann þá, vorið
1912, til Bíldudals. Stundaði hann sigurleifur Vagnsson
fyrst í stað sjómennsku og landvinnu
þá, sem til féll, en réðst síðan til verzlunarstarfa þar á staðnum, enda
gerði hann sér far um að mennta sig eftir föngum, lærði t. d. ensku,
dönsku ogsitt hvaðannað. Fyrst starfaði hann hjá Hannesi B. Stephen-
sen, en síðar hjá Ágústi Sigurðssyni.
Árið 1921 festi Sigurleifur ráð sitt og kvæntist Viktoríu Kristjáns-
dóttur, Gíslasonar að Gljúfrá í Arnarfirði. Varð þeim hjónum tveggja
sona og þriggja dætra auðið. Synirnir eru nú báðir dánir. Árið 1984
varð fjölskyldan fyrir því áfalli, að bæði hjónin tóku „hvítu veikina".
Urðu þau að leita hælisvistar og koma börnunum fyrir um sinn, hjá
NáttúrufrœOingurinn, 2. hefti 1950 5