Náttúrufræðingurinn - 1950, Blaðsíða 29
TVÆR NÝFUNDNAR FISKTEGUNDIR
91
ar, sem á þeim eru að utan, standa út úr húðinni og er engu líkara
en þau séu fægð á yfirborði, þannig að sjá má utan á beinunum, þótt
slétt séu hið ytra, hvernig innri gerð þeirra er, með ótal holum og
þunnum milligerðum. Á milli beinkambanna eru ýmislega lagaðar
holur, fylltar slími, en yfir holurnar, milli beinkambanna, ligcja
5. tnynd. II er bein úr vinslra tálknloki búrjisks, 1 cr hreistur, 2 kjölhreistur, 3 rákar-
hreistur (scð að ofan (a) og að fratnan (b)), 4 cr kvörn. Ncðst cr vinstra svit (tálknbein-
ið og svilin slatida á höfði). Fischereiwelt, 1. hefti 1950.
örþunnar, gagnsæar húðhimnur. Fyrir framan augun eru tvennar
nasir. Munnlínan er þvínær lóðrétt, en ginið er ótrúlega vítt, þegar
munnurinn er opinn.
Venjulega hafa fiskar tennur aðeins í munninum, en þessi hefur