Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1950, Síða 40

Náttúrufræðingurinn - 1950, Síða 40
Jón Eyþórsson: Prófessor Antonio Baldacci ísland og Ítalía eru mestu eldfjalla- lönd Norðurálfu, og forn trú er það, að Etna taki að ókyrrast, þegar Hekla gýs. En langt er á milli landanna og gagnkvæm kynn- ing ítala og íslend- inga af skornum skammti, þótt tals- verð verzlun hafi verið milli þeirra síðustu áratugina. Nú hefur svo einkennilega skip- azt, að ítalskur vís- indamaður, prófess- or Antonio Baldac- ci, áður forseti vís- indafélagsins í Bol- ogna, hefur tekið sér fyrir hendur að affa sér vitneskju um ísland og fræða landa sína um náttúru fandsins og þjóðina. Líkfega hafa fregnir um nokkurn jarðhita hér á fandi fyrst vakið athygfi Baldacci, en Ítalía er forgönguland um notkun jarðhita til framleiðslu rafmagns. Nokkuð er það, að hann skrifaði Steinþóri Sigurðssyni magister skömmu eftir stríðslokin og bað hann um ýmsar heimildir og fróðleik frá íslandi. Eftir fráfaB Steinþórs hafa undirrituðum borizt nokkur bréf og allmargar ritgerðir um ís- land frá Baldacci. M. a. hefur hann ritað grein með ágætum myndum um síðasta Heklugosið í eittlivert vandaðasta tímarit ítala. Hann hef- ur skrifað Iangar greinar um sögu landsins, sjálfstæðisbaráttu þess, skólamál, náttúru, notkun jarðhita o. s. frv.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.