Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 13

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 13
ÍSLENZKAR STARIR 7 mikil atriði í plöntulandafræði. Kenning þessi er orðin meir en hálfrar aldar gömul, því að hinn norski grasafræðingur Axel Blytt setti hana fram um 1890, og sænski náttúrufræðingurinn Rutger Sernander hélt því fram 1896, að nokkrar fjallajurtir hefðu lifað af síðustu ísold á ströndum Noregs. Sá maður, er sérstaklega hefur haldið merki Rutgers á lofti tvo síðustu áratugi, er norski grasa- fræðingurinn próf. Rolf Nordhagen, og hefur hann lagt franr veiga- miklar sannanir í þeim efnum.1 En um þær rannsóknir er ekki liægt að ræða hér nánar rúmsins vegna. Eins og áður er á minnzt, telja jarðfræðingar ekkert benda til þess, að ísland hafi verið tengt öðrum löndum eftir síðustu ísölcl. Á hinn bóginn er það alveg óráðin gáta, hvenær landið varð eyland. Eða hvort tengslin við Færeyjar og Grænland hafi slitnað samtímis eða ekki. Þó er álit margra náttúrufræðinga, að landbrúin milli Grænlands og Islands hafi sokkið í sjó fyrir að minnsta kosti 700—800 þús. árum. Frá gróðurfræðilegu sjónarmiði séð tel ég sennilegt, að sambandið við Færeyjar hafi rofnað löngu síðar. Mín skoðun er sú, að minnst 60% þeirra starategunda, er nú vaxa hér, hafi aldrei yfirgefið landið síðan á 1. lilýviðrisskeiði jökultím- ans eða síðan tengslin milli íslands og Grænlands brustu. Ef svo er, væri þá ekki líklegt, að við ættum eitthvað al' endemiskum, þ. e. ein- lendum eða staðbundnum tegundum? Svo er ekki víst, „Rómaborg var ekki byggð á einum degi“. Hver 100 þúsund ár er ekki langur tími í sköpunarsögu tegundanna. En mjög er líklegt, að við eigum eitthvað af endemiskum afbrigðum meðal vissra tegunda, en rann- sóknir í þeim efnum eru enn svo skannnt á veg komnar, að ekki er tímabært að ræða um þær hér. Og þar sem landið var orðið eyland fyrir síðustu ísöld, er ekki óhugsandi, að eitthvað af veikbyggðum afbrigðum hafi orðið aldauða á þessu síðasta kuldatímabili, Jrar sem flótti suður á bóginn var útilokaður. Svo kann að virðast, sem lítið hafi verið um friðland fyrir gróðurinn á meðan ísöld gekk yfir. En ef við lítum á ísvanasvæðakenninguna, er fyrr var á minnst, sem staðreynd, fæst viðunandi lausn á málinu. Hitt mun aftur á móti verða lengi umdeilanlegt, hvaða háplöntutegundir hafi lifað af harð- indin. Nú er meiri hluti starategundanna rakasæknar jurtir og Jrola vosbúð flestum plöntum betur, liafa mjög þolna jarðsprota og þurfa 1) Nordhagen, R: Oni Norges fjellflora og dens oprinnelse, Natnren 1937, hls. 204 og 264.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.