Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 28

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 28
22 N ÁT T Ú R U F R/E BINGURINN jarðvegsmyndun mýranna, í gróðursögu landsins og í íslenzkum landbúnaði. En hlutfallslega fáar tegundir hafa náð hér sterkum yfirráðum með ótrúlega miklum einstaklingafjölda. Þar til má nefna gulstör og mýraslör (starungur), enda skipta þær mestu máli fyrir búskap okkar íslendinga. Nokkurra annarra tegunda gætir ofurlítið í útheysskap, svo sem: hengistör (C. rariflöra), vetrarkvíðastör (C. chordorrliiza), Ijósastör (C. rostrata) og stinnastör (C. Bigelowii). Sú síðast talda lielur töluverða þýðingu sem beitijurt, þar eð hún myndar allvíða samfelldan gróður á afréttarlöndum, oft mjög hátt yfir sjó; enda ein hin þolnasta starategundin okkar. Aðrar tegundir, sem mynda stærri eða smærri gróðurbletti og geta talizt að óverulegu leyti til nytja eru: lirafnastör (C. saxatilis), rnarstör (C. salina), luír- leggjastör (C. capillaris), belgjastör (C. panicea) og blátoppastör (C. canescens). Það má því fullyrða, að um 75% af íslenzkum starateg- undum liafi enga þýðingu fyrir íslenzkan landbúskap né aðra hag- nýta þýðingu. Lítið oið hefur farið af lækningamætti staranna. Þó segir sr. Björn Halldórsson í Sauðlauksdal svo í Grasnytjum: „Sú hvíta, froðulega saft stararinnar er góð að hella í voða stirigi, óg líka er marin eða tuggin stör gott meðal til að leggja þar utan fyrir, sem flís eður ann- að þess slags er í holdi manns, það er út þarf að ná, því hún mýkir og gleiðir þar sem hún er viðlögð.“ Önnur hagnýting staranna var sú, að einstöku menn notuðu þær í tróð á hús og þótti gefast vel, svo og í undirdýnur (líklega hefur það verið tjarnastör eða grófgerð mýra- og gulstör, sem notuð var). Erlendis er C. brizoicles notuð enn í dag í dýnur og mottur. XIV. Er enn'að vccnta nýrra starategunda hér á landit Ef litið er á það, að síðan 1947 hala 4 tegundir bætzt við íslenzku staraflóruna, sýnist ekki fjarri að ætla, að hér væri úr nógú að moða af slíku tagi, og það því liemur sem rannsóknir þessara ára hafa ver- ið bundnar við mjög takmörkuð svæði. En mín skoðun er, að varla getum við átt eftir margar tegundir ófundnár enn. Af þeim tegund- um, sem í Grænlandi vaxa og ekki hafa fundizt hér, eru 3, sem til greina gætu kömið, það eru: C. misandra, C. rotundata (skyld tjarna- stör og C. parallela (skyld tvíbýlisstör). Þær vaxa einnig í Noregi. Þá er lnigsanlegt, að C. binervis og C. Hostiana, sem báðar eru til í Færeyjum, eigi eftir að finnast á Austfjörðum. Annars vil ég sem

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.