Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1951, Side 53

Náttúrufræðingurinn - 1951, Side 53
SMÁGREINAR 47 Bæjarsker Upp af Króknúm heitir Bæjarsker, suðaustan í Breiðamerkurfjalli. Er það buugu- myndaður, brattur múli, og verður dálítill hjalli ofan á honum í fjallshlíðinni. Mun hjallabrúnin vera allt að 200 m yfir sjávarmál. Þángað hefur jökull náð og skilið eftir ruðning með gabbróbjörgum. Neðan af aurunum l)er Bæjarsker mjög lit af efra hluta fjallsins. Er það ljósgrátt eða grágrænt að lit, enda mun það vera úr granófýr. I Breiðamerkurmúla, norðan við Jiikullónið, kemur sama bergtegund í ljós. Virðist því öll undirstaða Breiðamerkurfjalls vera úr granófýr, að minnsta kosti að suðaustan og austan. Að norðan og vestan liggur jökull svo hátt upp í fjallið, að undirstaðan sést eigi. Undir Ba jarskeri ætla menn, að bærinn Fjall hafi staðið, en Breiðá nokkru austar. Hcfur jökullinn skilið eftir dálitlar jarðvegsleifar í nokkrum smáhólum við fjallsræt- urnar. Neðst í þeim er mór, en jökulbruðningur ofan á. í bökkura kvíslarinnar, scm rcnnur fram með skerinu, er einnig mólag undir 3 m þykkum aur. ]■ Eyþ. Jöklamýsnar Sigurður Þórarinsson prófcssor hefur látið ákvarða mosategundina á sýnishorni, scm ég sendi honum. Samkvæmt ákvörðun fil. dr. Herman l’ersson er Jrctta Rhacomitrium fasciculare (Hedw.) Brid, sem er mjög algeng tegund (Sjá A. Hesselbo, The Bryophyta of Iceland. — Rosenwinge-Warming, Thc Botany of Iceland, Vol. I, Pt. II. Copen- hagcn and London, 1918.). J. Eyþ. Áskriftarverð Náttúrufræðingsins Vegna mjög aukins kostnaðar við útgáfu og prentun Náttúrufræðingsins hcfur stjórn Hins íslenzka náttúrufræðifélags ákvcðið, að áskriftarverð Náttúrufræðingsins hækki um 5 kr„ úr kr. 25.00 í kr. 30.00 árgangurinn. Leiðrétting Lesendur eru beðnir að leiðrctta eftirfarandi í grein minni í síðasta hefti Náttúru- fræðingsins „Sunnlenzka síldin í ljósi rannsóknanna". Á síðu 145, I. linu a. o. standi „tveimur" í stað „þrern". H. E. CORRF.CTION In the abstract of my essay „On thc Herring in southern Icelandic waters", Náttúru- fræðingurinn 1950, p. 163 line 12 from below: for „three", rcad „two". H. E.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.